01.08.2013

Á ann­að hundrað verk hafa borist á Götu­sýninguna 2013

Götusýningin 2013 er stærsta listsýning landsins. Hún er jafnframt sú fyrsta sem fram fer á götuskiltum höfuðborgarinnar og mun setja skemmtilegan svip á borgina í viku Menningarnætur. Sýningin hefur hlotið afar góðar viðtökur meðal listafólks og hönnuða. Þegar hafa borist um 150 listaverk á sýninguna þar sem sköpunargleði, snilli og fjölbreyttar útfærslur fá njótið sín. Mörg mismunandi form mynda eru á sýningunni, málverk, teikningar, ljósmyndir, grafísk hönnun og útsaumur.

Sýningin er öllum opin og allir sem fást við myndlist eða hönnun af einhverju tagi eru hvattir til þátttöku í sýningunni en frestur til innsendingar rennur út 9. ágúst 2013. Einungis þarf að setja ljósmynd af verki á sýninguna inn á arionbanki.is og allar nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni. Stefnt er að því að 500 myndir verði til sýnis á götuskiltum höfuðborgarsvæðisins dagana 20. - 27 . ágúst en einnig má sjá sýninguna í heild á arionbanki.is. Þátttakendur og sýningargestir munu geta fundið hvar verkin eru staðsett í borginni á sömu vefsíðu. Þess má geta að þegar hefur orðið vart áhuga listunnenda á að kaupa verk á sýningunni.

Götusýningin 2013 er framlag Arion banka til Menningarnætur. Með sýningunni vill bankinn laða fram sköpunarkraftinn í samfélaginu, vinna að jákvæðri uppbyggingu og stuðla að nýsköpun.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira