20.05.2010

Aðal­fund­ur Arion banka 2010

Aðalfundur Arion banka fyrir starfsárið 2009, fyrsta heila rekstrarár bankans, var haldinn í dag, fimmtudaginn 20. maí, í höfuðstöðvum bankans við Borgartún. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf.

Á fundinum var fjölgað um einn í stjórn bankans. Nýr stjórnarmaður er Colin S. Smith frá Bretlandi. Í stjórn bankans sitja nú Monica Caneman stjórnarformaður, Guðrún Johnsen varaformaður, Kristján Jóhannsson, Steen Hemmingsen, Theodór S. Sigurbergsson og Colin C. Smith en þau hafa öll víðtæka reynslu af stjórnun, stefnumótun og rekstri fjármálafyrirtækja.

Guðrún Johnsen, varaformaður stjórnar, flutti skýrslu stjórnar. Í máli hennar kom m.a. fram að eitt af fyrstu megin verkefnum stjórnarinnar var að ráða Höskuld H. Ólafsson bankastjóra. Höskuldur hefur síðustu fjögur ár starfað sem forstjóri Valitors en þar áður starfaði hann í 17 ár hjá Eimskip. Hann hefur víðtæka stjórnunarreynslu hér á landi og erlendis. Höskuldur kemur til starfa 1. júní næstkomandi.

Guðrún sagði að framundan væru vandasöm og krefjandi verkefni fyrir nýja stjórn og starfsmenn. En með áframhaldandi seiglu og krafti starfsfólks muni takast að leysa úr erfiðari málum heimila og fyrirtækja á skemmri tíma og uppbygging efnahagslífsins ganga hraðar en ella.

Guðrún þakkaði bæði það samstarf og þá þolinmæði sem viðskiptavinir hafa sýnt á erfiðum tímum en það gefi fyrirheit um árangursríkt, áframhaldandi viðskiptasamband.

Í máli hennar kom einnig fram að aðstaða og tækifæri fólks í fjármálageiranum til að læra af fortíðinni hafi sjaldan verið betri, m.a. vegna skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Hún lagði enn fremur áherslu á að í þeirri vinnu sem framundan er þurfi að gæta þess að fara ekki úr einum öfgunum í aðrar og ekki megi heldur henda fyrir róða dýrmætri þekkingu og reynslu sem er til staðar.

Þá kom fram að stjórn bankans leggur mikla áherslu á að styrkja innra eftirlit bankans og auka samstarf við eftirlitsstofnanir. Innan bankans hefur orðið mikil breyting á regluverki og starfsháttum og beðið er eftir nýjum lagaramma sem Alþingi er nú að móta um starfsemi fjármálafyrirtækja. Stöður innri endurskoðanda, regluvarðar og áhættustýringar hafa verið efldar og samstarf þeirra aukið til muna.

Loks kom fram í máli Guðrúnar að hópur starfsmanna hafi þegar farið í gegnum skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Meðal þess sem ákveðið var í kjölfarið er að starfsmenn taka nú þátt í fræðslufundaröð um siðferði í samstarfi við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Einnig hefur starfshópur um siðferði verið skipaður í bankanum. Allt eru þetta mikilvægir áfangar í að byggja enn frekar undir stoðir bankans og gera hann öflugri til að takast á við þau verkefni sem framundan eru.

Rekstur Arion banka traustur

Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri fór yfir ársreikning síðastliðins starfsárs. Í máli hans kom fram að rekstur bankans gekk vel á árinu þrátt fyrir erfitt árferði og er enduruppbygging bankans vel á veg komin. Hún byggi á sterkum efnahag, góðri lausafjárstöðu og traustri fjármögnun.

Finnur sagði einnig að áhersla hafi verið lögð á að styrkja verkferla, verklagsreglur og innra eftirlit. Starfsfólk hafi lagt hart að sér við vandasöm og flókin verkefni og að erfitt ár væri að baki bæði fyrir starfsfólk og viðskiptavini.

Eins og áður hefur komið fram nam afkoma bankans á árinu 12,8 milljörðum króna eftir skatta og arðsemi eiginfjár var 16,7%. Samþykkt var að greiða ekki út arð vegna ársins 2009.

Colin Spencer Smith - stjórnarmaður

Colin býr í Englandi. Eftir 39 ára feril hjá Midland Bank og síðar HSBC eftir yfirtöku, hefur hann víðtæka sölu-, viðskipta- og fyrirtækjabankareynslu í Bretlandi, Evrópu, Bandaríkjunum og Austur-Asíu með viðkomu í New York og Hong Kong. Eftir komuna frá Austur-Asíu árið 1987, tók hann ábyrgð á alþjóðlegum lánamálum bankans og stórum vandamálalánum. Í framhaldinu tók hann við stöðu lánastjóra HSBC árið 1997 þar til hann lét af störfum árið 2003. Sem framkvæmdastjóri í bankanum var hann einnig hluti af yfirstjórn, eigna- og skuldanefnd bankans og stjórnarmaður ýmissa dótturfyrirtækja. Í dag er Colin félagi í Chartered Institute of Bankers, fyrrum forseti Risk Management Association í London og var stjórnarformaður í British Bankers Accociation Wholesale Committee frá 2002 til 2003. Frá starfslokum sínum hefur Colin tekið að sér fjölda ráðgjafastarfa og fjölda verkefna sem dómkvaddur matsmaður.

Nánari upplýsingar veitir:

Berghildur Erla Bernharðsdóttir
Upplýsingafulltrúi
Skrifstofa bankastjóra
berghildur.bernhardsdottir@arionbanki.is 
www.arionbanki.is 
Beinn sími: 444 6127
Farsími: 856 6127
Sími: 444 7000
Fax: 444 6119

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira