22.03.2012
Aðalfundur Arion banka 2012
Aðalfundur Arion banka 2011 var haldinn síðdegis í dag, fimmtudaginn 22. mars, í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf.
Á fundinum var kjörin ný stjórn. Í aðalstjórn voru kjörin Agnar Kofoed-Hansen, Freyr Þórðarson, Guðrún Johnsen, Jón G. Briem, Måns Höglund og Monica Caneman. Agnar er fulltrúi Bankasýslu ríkisins í stjórninni.
Varamenn í stjórn bankans voru kjörnir Björg Arnardóttir, Guðjón Ólafur Jónsson, Guðrún Björnsdóttir, Hrönn Ingólfsdóttir, Kirstín Þ. Flygenring og Þóra Hallgrímsdóttir.
Á fundinum var samþykkt að enginn arður skyldi greiddur út vegna ársins 2011 og að laun stjórnarmanna skyldu haldast óbreytt frá fyrra ári. Einnig var samþykkt ný starfskjarastefna bankans.
Skýrsla stjórnar 2011
Monica Caneman, formaður stjórnar Arion banka, flutti skýrslu stjórnar. Fjallaði hún meðal annar um þann árangur sem náðst hefur á Íslandi á undanförnum árum hvað varðar minnkandi halla á ríkissjóði, aukin hagvöxt og úrlausnarmál fyrirtækja og einstaklinga.
Í sínu máli lagði Monica áherslu á að hér á landi yrði óvissuþáttum fækkað eins fljótt og auðið er, enda sé það ein helsta forsenda þeirrar aukningar í fjárfestingum sem íslenskt efnahagslíf þarf svo mjög á að halda.
Monica kom einnig inn á almennt mikilvægi fjármálastofnana fyrir efnahagslíf hvers lands og þá ríku áherslu sem lögð hefur verið á það innan Arion banka að byggja upp fjárhagslega sterkan banka til að bankinn geti sem best gegnt hlutverki sínu. Nefndi hún þar til sögunnar að tekist hefði að styrkja eiginfjárhlutfall bankans til muna og gæði lánasafna frá því að Arion banki tók þau yfir frá þrotabúi Kaupþings.
Monica varaði við því að íslensk stjórnvöld settu íslenskum fjármálafyrirtækjum of mikið af séríslenskum reglum eða legðu á þau álögur sem væru á skjön við það sem gerist í öðrum atvinnugreinum sem og í löndunum í kringum okkur. Slíkt myndi skerða samkeppnishæfni íslenskra fjármálafyrirtækja og getu til að þjóna atvinnulífi og heimilum.
Í skýrslu sinni fjallaði Monica um þá umræðu sem verið hefur hér á landi um aðskilnað fjárfestingarbankastarfsemi frá viðskiptabankastarfsemi. Benti hún á að henni vitanlega væri slík umræða ekki í gang í Svíþjóð né á hinum Norðurlöndunum.
Að mati Monicu eru horfur fyrir árið 2012 góðar. Mikil árangur hafi náðst í að styrkja innviði og grunnstoðir bankans sem skapar grundvöll áframhaldandi uppbyggingar.
Mikilvægum áföngum náð
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, fór yfir ársreikning síðastliðins starfsárs. Að hans mati var afkoma ársins 2011 ásættanleg í ljósi aðstæðna og dóms Hæstaréttar frá febrúar síðastliðnum.
Lagði Höskuldur í máli sínu áherslu á að gæði eignasafns bankans hafi breyst til batnaðar á árinu. Fyrst og fremst vegna árangurs í úrlausnarmálum heimila og fyrirtækja og vegna yfirtöku á íbúðalánasafni frá þrotabúi Kaupþings. Einnig kom fram í hans máli að yfirtakan á íbúðalánasafninu hefði haft í för með sér aukinn fjölbreytileika í langtímafjármögnun bankans.
Höskuldur stiklaði á stóru varðandi helstu atburði ársins 2011 og nefndi meðal annars nýjungar sem bankinn hefði boðið viðskiptavinum sínum á árinu eins og verðtryggð og óverðtryggð íbúðalán á hagstæðari kjörum en áður stóðu til boða. Einnig að bankinn hefði sótt fram á fjölmörgum mörkuðum með góðum árangri t.d. á sviði eignastýringar og fyrirtækjaþjónustu þar sem nýir viðskiptavinir gengu til liðs við bankann.
Skráning Haga í Kauphöll Íslands var að mati Höskuldar ekki bara mikilvægur áfangi fyrir bankann og félagið sjálft heldur einnig íslenska fjármálamarkaðinn. Mikil eftirspurn í útboði Haga og eftir að hlutabréf félagsins voru tekin til viðskipta í kauphöllinni sýni styrk Haga en ekki síður að þörf sé á fleiri fjárfestingarkostum hér á landi.
Á árinu réðst Arion banki einnig í umtalsverðar hagræðingaraðgerðir. Starfsfólki bankans fækkaði um 80 á árinu og útibúum bankans var fækkað, meðal annars með sameiningu þriggja útibúa á höfuðborgarsvæðinu í eitt stórt útibú á Höfða. Hefur Arion banki þannig frá stofnun bankans fækkað útibúum um þriðjung. Lagði Höskuldur áherslu á að þessum áfanga í uppbyggingu Arion banka væri nú lokið og myndi bankinn nú í ríkari mæli beina sjónum sínum fram á við; að aukinni og bættri þjónustu við sína viðskiptavini.
Afkoma Arion banka á árinu 2011 var jákvæð um 11,1 milljarð króna eftir skatta. Heildareignir bankans í árslok námu 892 milljörðum. Arðsemi eigin fjár var 10,5% á árinu og eiginfjárhlutfall bankans í árslok 2011 var 21,2%.