21.03.2013
Aðalfundur Arion banka 2013
Aðalfundur Arion banka 2013 var haldinn síðdegis í dag, fimmtudaginn 21. mars, í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf.
Á fundinum var kjörin ný stjórn. Í aðalstjórn voru kjörin Agnar Kofoed-Hansen, Freyr Þórðarson, Guðrún Johnsen, Jón G. Briem, Måns Höglund, Monica Caneman og Þóra Hallgrímsdóttir. Agnar er fulltrúi Bankasýslu ríkisins í stjórninni, aðrir eru tilnefndir af Kaupskilum.
Varamenn í stjórn bankans voru kjörnir Björg Arnardóttir, Böðvar Jónsson, Guðrún Björnsdóttir, Hrönn Ingólfsdóttir, Kirstín Þ. Flygenring, Ólafur Árnason og Ólafur Örn Svansson.
Á fundinum var samþykkt að enginn arður skyldi greiddur út vegna ársins 2012 og að laun stjórnarmanna skyldu haldast óbreytt frá fyrra ári. Þá var starfskjarastefna bankans samþykkt óbreytt.
Skýrsla stjórnar 2012
Monica Caneman, formaður stjórnar Arion banka, flutti skýrslu stjórnar. Í máli sínu lagði Monica áherslu á mikilvægi fjármálastofnanna fyrir efnahagslíf hverrar þjóðar. Hún kom inn á þann árangur sem náðst hefur hér á landi á undanförnum árum hvað uppbyggingu fjármálakerfisins varðar. Hún benti á að Arion banki sé í dag fjárhagslega sterkur banki, með eiginfjárhlutfall upp á rúm 24%, vel yfir þeim kröfum sem gerðar eru til bankans af FME. Monica tók einnig fram að bankinn legði áherslu á að viðhalda sterku eiginfjárhlutfalli, svo lengi sem umtalsverðir óvissuþættir í umhverfi bankans væru til staðar.
Monica vék einnig að því sem einna helst skilur aðstæður á Íslandi frá viðskiptaumhverfi í mörgum öðrum ríkjum. Þar er fyrst að nefna gjaldeyrishöftin. Monica sagði höftin hafa gegnt mikilvægu hlutverki en nauðsynlegt væri að skapa hér aðstæður sem gerðu kleift að afnema höftin. Eitt af því sem máli skiptir í því samhengi er aðgengi íslenskra fjármálafyrirtækja að erlendum fjármagnsmörkuðum. Mikilvægur áfangi náðist snemma á þessu ári þegar Arion banki reið á vaðið og gaf út skuldabréf í norskum krónum.
Monica nefndi í þessu samhengi einnig gæði lánasafna íslenskra banka. Þrátt fyrir þann mikla árangur sem náðst hefur við úrvinnslu skuldavanda bæði fyrirtækja og einstaklinga, er hlutfall lána í vanskilum og niðurfærðra lána enn hærra hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum en almennt gerist erlendis. Hjá Arion banka er þetta hlutfall um 12,5% en lán í vanskilum nema þar af aðeins um 6%. Monica lagði áherslu á að áfram yrði unnið í þessum málum og að gera mætti ráð fyrir að góður árangur næðist á yfirstandandi ári, markmið bankans væri að ná þessu hlutfalli niður í um 5%.
Í máli sínu lagði hún einnig ríka áherslu á annað brýnt úrlausnarefni fyrir íslensk efnahagslíf sem er aukin fjárfesting. Þar beindi hún máli sínu ekki síst til íslenskra stjórnvalda, sem hafa náð góðum árangri við að draga úr hallarekstri ríkisins, en benti jafnframt á þá óvissu sem hér á landi hefur ríkt um framtíðarskipan sumra af lykilatvinnuvegum landsins. Þeirri óvissu þarf að eyða sem fyrst til að auka tiltrú fjárfesta, jafnt innlendra sem erlendra, á íslenskt efnahagslíf og stuðla þannig að aukinni fjárfestingu hér á landi.
Monica kom líka í ræðu sinni inn á þá umræðu sem verið hefur hér á landi varðandi aðskilnað á starfsemi fjárfestingar- og viðskiptabanka. Þar lagði hún áherslu á mikilvægi þess að hér á landi yrðu ekki settar séríslenskar reglur sem settu starfsemi íslenskra fjármálafyrirtækja þrengri skilyrði en gengur og gerist í löndunum í kringum okkur. Íslenskir bankar eru í samkeppni við erlendar fjármálastofnanir þegar kemur að þjónustu við stærstu fyrirtæki landsins og mikilvægt er að skerða ekki samkeppnishæfni þeirra. Í þessu samhengi ræddi Monica einnig mikilvægi alþjóðlegra reglna eins og Basel III, en bankar um allan heim vinna að því að laga starfsemi sína að þeim.
Monica undirstrikaði að árið 2012 hefði verið gott ár í stuttri sögu Arion banka og að mikilvægur árangur hefði náðst á ýmsum sviðum.
Stöðugleiki í rekstri mikilvægur
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, fjallaði um ársreikning síðastliðins starfsárs. Höskuldur sagði afkomu bankans á árinu góða og í takt við væntingar og áætlanir.
Höskuldur lagði áherslu á það í sínu máli að stöðugleiki einkenndi nú rekstur bankans umfram annað. Það sýndi öðru fremur þann árangur sem náðst hefði á undanförnum árum við uppbyggingu bankans.
Höskuldur rifjaði upp að í upphafi árs 2012 hefði Arion banki endurgreitt skilvísum viðskiptavinum hluta greiddra vaxta ársins 2011. Var endurgreiðslan ígildi um tveggja gjalddaga. Alls nutu um 33 þúsund skilvísir viðskiptavinir bankans góðs af.
Höskuldur vék sérstaklega að því að viðskiptaþróun skipaði æ ríkari sess í starfi bankans. Bankinn hefði á sínum tíma bylt íbúðalánamarkaðnum hér á landi þegar hann bauð óverðtryggð lán á hagstæðum kjörum með bundna vexti í 5 ár. Einnig kom fram að á árinu hóf bankinn að bjóða bíla- og tækjafjármögnun, hann bauð jafnframt þeim sem eru að taka fæðingarorlof lægri greiðslur af íbúðalánum sínum og kynnti til leiks nýtt app fyrir snjallsíma.
Sala yfirtekinna fyrirtækja gekk vel á árinu og er nú svo komið að bankinn er langt kominn með að selja þau fyrirtæki sem hann hefur þurft að taka yfir. Sama má segja um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja og einstaklinga. Sú vinna skipar æ veigaminni sess í daglegri starfsemi bankans en Höskuldur lagði áherslu á að áfram yrði þeim málum sem snúa að skuldavanda viðskiptavina sinnt af kostgæfni.
Höskuldur kom inn á að á árinu 2012 hóf Arion banki að gefa út sértryggð skuldabréf, bæði verðtryggð og óverðtryggð. Þó að þörf bankans fyrir endurfjármögnun sé ekki aðkallandi á næstu árum, lagði Höskuldur engu að síður áherslu á að um sé að ræða mikilvæg skref til að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans. Höskuldur gat þess einnig að í upphafi árs hafi Arion banki gefið út skuldabréf í erlendri mynt fyrstur íslenskra banka síðan 2007.
Afkoma Arion banka á árinu 2012 var jákvæð um 17,1 milljarð króna eftir skatta. Heildareignir bankans í árslok námu 901 milljarði. Arðsemi eigin fjár var 13,8% á árinu og eiginfjárhlutfall bankans í árslok 2012 var 24,3%.
Ræða stjórnarformanns
Ársskýrsla Arion banka 2012 (flash)
Annual Report 2012 (flash)