20.04.2012
Aðskilnaður viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi
Greiningardeild Arion banka stóð fyrir morgunfundi í höfuðstöðvum bankans í morgun þar sem umfjöllunarefnið var ný skýrsla greiningardeildar um hugmyndir um aðskilnað viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi.
Fyrirlesarar fundarins voru: Davíð Stefánsson sérfræðingur í Greiningardeild Arion banka, Paul Jenkins sérfræðingur hjá McKinsey í Osló, Marc Lient sérfræðingur hjá McKinsey í London auk Höskuldar H. Ólafssonar bankastjóra Arion banka.
Á fundinum fór Davíð yfir helstu niðurstöður skýrslu greiningardeildar auk þess sem sérfræðingar McKinsey fjölluðu um hvað þarf að hafa í huga þegar hugmynd sem þessi er metin.