29.08.2013
Afkoma Arion banka á fyrri árshelmingi 2013
Hagnaður Arion banka á fyrri helmingi ársins 2013 nam 5,9 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 11,2 milljarða króna á sama tímabili á árinu 2012. Arðsemi eigin fjár var 8,9% samanborið við 18,8% á sama tímabili árið 2012. Arðsemi af kjarnastarfsemi var 8,1% en var 11,8% á sama tíma árið 2012. Heildareignir námu 929,0 milljörðum króna samanborið við 900,7 milljarða króna í árslok 2012.
Hagnaður á öðrum ársfjórðungi nam 4,5 milljörðum króna samanborið við 6,8 milljarða króna á sama tímabili á árinu 2012. Arðsemi eigin fjár á öðrum ársfjórðungi var 13,5% samanborið við 22,7% á sama ársfjórðungi árið 2012 og arðsemi af kjarnastarfsemi nam 9,9% en 11,4% á öðrum ársfjórðungi ársins 2012.
Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 24,3%, sem er það sama og í árslok 2012.
Helstu atriði árshlutareikningsins:
Hagnaður eftir skatta nam 5,9 mö.kr. samanborið við 11,2 ma.kr. á sama tímabili 2012.
Hagnaður á öðrum ársfjórðungi nam 4,5 mö.kr. samanborið við 6,8 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi ársins 2012.
Hagnaður af kjarnastarfsemi nam 5,4 mö.kr. samanborið við 7,0 ma.kr. á sama tímabili 2012.
Rekstrartekjur lækka milli ára og námu 20,8 mö.kr. samanborið við 24,9 ma.kr. á sama tímabili 2012. Helstu ástæður eru lækkun vaxtamunar, sem m.a. er tilkomin vegna bindingar innlána, skuldabréfaútgáfu og minni virðisbreytinga á lánasafni.
Hreinar vaxtatekjur námu 12,7 mö.kr. og eru nokkru lægri en á sama tíma 2012, einkum vegna lægri verðbólgu.
Hrein virðisbreyting á útlánum nemur 0,1 ma.kr. og skýrist mest af niðurfærslum vegna gengislánadóma og töpuðum útlánum sem nema samtals 6,8 mö.kr. Einnig virðisaukningu útlána, einkum til fyrirtækja, sem nemur samtals 6,7 mö.kr.
Arðsemi eigin fjár var 8,9% en var 18,8% á sama tímabili 2012. Arðsemi af kjarnastarfsemi var 8,1% samanborið við 11,8% á sama tíma 2012.
Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna var 3,1% á tímabilinu en var 3,4% á sama tímabili 2012.
Kostnaðarhlutfall á tímabilinu var 62,4% en var 52,0% á sama tímabili 2012. Hátt hlutfall nú skýrist m.a. af varúðarfærslu vegna sektar samkeppnisyfirvalda á Valitor og lægri rekstrartekna en á sama tíma 2012.
Kostnaðarhlutfall af kjarnastarfsemi nam 60,3% samanborið við 52,8% á sama tímabili 2012.
Útlán til viðskiptavina í lok tímabilsins námu 567,3 mö.kr. og hafa lítið breyst frá áramótum.
Heildareignir námu 929,0 mö.kr., samanborið við 900,7 ma.kr. í árslok 2012.
Eigið fé bankans í lok tímabilsins var 136,8 ma.kr. en nam 130,9 mö.kr. í lok árs 2012.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Uppgjör bankans á öðrum ársfjórðungi er í samræmi við væntingar. Staða bankans heldur áfram að styrkjast. Þar skiptir miklu aukin gæði lánasafns bankans sem og fjölbreyttari fjármögnun, en mikil vinna hefur verið unnin á þessum sviðum undanfarin misseri. Eiginfjárhlutfall bankans er áfram mjög sterkt sem og lausafjárhlutaföll.
Þrátt fyrir góða afkomu á öðrum ársfjórðungi þá litast uppgjörið fyrir fyrstu sex mánuði ársins af uppgjöri bankans á fyrsta ársfjórðungi sem var undir væntingum, fyrst og fremst vegna þróunar gjaldmiðilsins og einskiptiskostnaðar hjá dótturfélagi bankans.
Við sjáum aukna eftirspurn eftir lánum á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er jákvæð þróun og er um að ræða ríflega 60% aukningu á nýjum lánum miðað við sama tímabil í fyrra. Því er ekki að neita að við myndum vilja sjá eftirspurnina aukast enn meira sé horft til þess að við erum að koma úr tímabili mikillar kyrrstöðu en breyting á eftirspurn er vísbending um umsvif í hagkerfinu.
Áfram er góður stöðugleiki í öllum grunnþáttum í starfsemi bankans, þó eru enn til staðar í ytra umhverfi bankans þættir sem eru sveifluvaldandi svo sem verulegar gjaldfærslur vegna gengisdóma, nú á þessu ári líkt og undangengin ár. Engu að síður sjáum við áhrif óreglulegra liða í rekstri bankans fara minnkandi og gerum ráð fyrir áframhaldandi þróun í þá veru.“