26.08.2015

Af­koma Arion banka á fyrri árs­helm­ingi 2015

Hagnaður Arion banka á fyrri helmingi ársins 2015 nam 19,3 milljörðum króna samanborið við 17,4 milljarða króna á sama tímabili 2014. Markast afkoma tímabilsins mjög af óreglulegum liðum líkt og á árinu 2014. Skipta þar mestu einskiptisatburðir eins og skráning og sala bankans á hlutum í fasteignafélaginu Reitum og alþjóðlega drykkjaframleiðandanum Refresco Gerber. Arðsemi eigin fjár var 22,8% samanborið við 23,4% á sama tímabili árið 2014. Hagnaður af reglulegri starfsemi á tímabilinu nam 8,7 milljörðum króna samanborið við 6,0 milljarða á sama tímabili 2014. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi nam 10,8% á fyrri helmingi ársins samanborið við 8,1% á sama tímabili 2014. Heildareignir námu 974,8 milljörðum króna samanborið við 933,7 milljarða króna í árslok 2014.

Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 23,2% en var 26,3% í árslok 2014. Lækkunin er einkum tilkomin vegna arðgreiðslu að fjárhæð 12,8 milljarðar króna og fyrirframgreiðslu á víkjandi lánum frá ríkinu að fjárhæð 20 milljarðar króna. Hlutfall eiginfjárþáttar A nam 21,8% og er óbreytt frá árslokum 2014.

Helstu atriði árshlutareikningsins

  • Hagnaður eftir skatta nam 19,3 mö.kr. samanborið við 17,4 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 8,7 mö.kr. samanborið við 6,0 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Eiginfjárhlutfall nam 23,2% í lok tímabils samanborið við 26,3% í árslok 2014.

  • Arðsemi eigin fjár var 22,8% samanborið við 23,4% á sama tímabili 2014. Af reglulegri starfsemi nam arðsemin 10,8% á tímabilinu, samanborið við 8,1% á sama tímabili 2014.

  • Hreinar vaxtatekjur námu 13,2 mö.kr. samanborið við 12,2 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Hreinar þóknanatekjur námu 7,4 mö.kr. samanborið við 6,6 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Rekstrartekjur hækka á milli ára og námu 36,1 mö.kr. samanborið við 25,7 ma.kr. á sama tímabili 2014. Mikil hækkun rekstrartekna er einkum tilkomin vegna söluhagnaðar og hækkunar á verðmati á eignarhlutum í Reitum fasteignafélagi hf. og Refresco Gerber í tengslum við skráningu félaganna á markað.

  • Hrein virðisbreyting er neikvæð á tímabilinu og nemur 0,1 ma.kr., samanborið við 2,0 ma.kr. jákvæða virðisbreytingu á sama tímabili 2014. Hrein virðisbreyting lána hjá dótturfélaginu AFL – sparisjóði var neikvæð á tímabilinu og nam 1,7 ma.kr. Hrein virðisbreyting annarra lána samstæðunnar var jákvæð um sambærilega fjárhæð.

  • Tekjuskattur nam 2,4 mö.kr. samanborið við 2,5 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Kostnaðarhlutfall var 36,5% en var 50,5% á sama tímabili 2014. Af reglulegri starfsemi nam kostnaðarhlutfall 50,3% samanborið við 60,2% á fyrri helmingi ársins 2014.

  • Eigið fé bankans var 168,4 ma.kr. en nam 162,2 mö.kr. í lok árs 2014.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Afkoma Arion banka fyrstu sex mánuði ársins er góð. Einskiptisatburðir frá fyrsta ársfjórðungi hafa áfram jákvæð áhrif á uppgjörið en þá seldi bankinn hluti í Reitum og alþjóðlega drykkjarframleiðandanum Refresco Gerber og voru félögin skráð á markað. Á öðrum ársfjórðungi er það fyrst og fremst regluleg starfsemi bankans sem skilar góðri arðsemi. Þannig heldur starfsemi bankans áfram að styrkjast og jukust þóknanatekjur, sem eru fyrst og fremst frá fyrirtækjum, um 13% á milli ára. Við sjáum einnig áhrif traustara efnahagsástands og aukinna umsvifa í efnahagslífinu í auknum lánveitingaum til fyrirtækja, einkum til fasteignaframkvæmda, flutninga- og ferðaþjónustu og sjávarútvegs, sem er mjög jákvætt.

Standard & Poor´s hækkaði nýverið lánshæfismat Arion banka og er bankinn nú kominn í fjárfestingarflokk sem greiðir aðgengi að erlendum fjármagnsmörkuðum. Hækkun lánshæfismatsins kom í kjölfar þess að Standard & Poor´s hækkaði lánshæfismat íslenska ríkisins eftir að áform stjórnvalda um afnám fjármagnshafta voru kynnt. Það samkomulag sem gert var á milli fulltrúa stjórnvalda og hluta kröfuhafa kveður á um breytingar á efnahag Arion banka en það hefur legið fyrir um langt skeið að Arion banki er vel í stakk búinn til að takast við slíkar breytingar samhliða afnámi hafta.

Eftir að Arion banki fékk forræði yfir AFL - sparisjóði þá hefur það komið okkur á óvart hve alvarleg staða sjóðsins er. Óháðir ráðgjafar voru fengnir til að meta stóran hluta af lánasafni sjóðsins og hefur reynst nauðsynlegt að færa útlán sjóðsins enn frekar niður, eða um rúman 1,7 milljarð króna á fyrri helmingi ársins. Hins vegar eru aðrar virðisbreytingar lána samstæðunnar jákvæðar um sambærilega upphæð og því eru samanlögð áhrif virðisbreytinga útlána á uppgjör tímabilsins lítil.“

Fundur með markaðsaðilum

Arion banki mun halda símafund á ensku fyrir markaðsaðila, fimmtudaginn 27. ágúst, klukkan 13:00. Á fundinum mun Stefán Pétursson, fjármálastjóri Arion banka, fara yfir helstu atriði í uppgjöri bankans. Áhugasamir geta sent tölvupóst á ir@arionbanki.is og fá í kjölfarið sendar innhringiupplýsingar.

Afkomutilkynning Arion Banka 6 M 2015
Árshlutareikningur Arion banka 30. júní 2015
Fjárfestakynning Arion banka 6 M 2015

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira