15.09.2010

Af­koma Arion banka á fyrri helm­ingi ársins 2010

Hagnaður Arion banka samkvæmt könnuðum árshlutareikningi fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2010 nam 7,9 milljörðum króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 17,7% á ársgrundvelli.

Með yfirtöku Kaupskila á 87% hlut í Arion banka þann 8. janúar 2010 styrktist eiginfjárstaða bankans þar sem Kaupskil lagði bankanum til nýtt eigið fé ásamt því að ríkið veitti bankanum víkjandi lán upp á 29 ma.kr. Eiginfjárhlutfall bankans þann 30. júní 2010 var 16,4% sem er yfir 16% kröfu Fjármálaeftirlitsins. Jafnframt stenst Arion banki mjög rúmlega allar lausafjárkröfur eftirlitsaðila.

Helstu atriði árshlutareikningsins:

  • Hagnaður eftir skatta nam 7,9 ma.kr. á fyrri hluta ársins 2010.

  • Rekstrartekjur námu alls 27,7 ma.kr. á tímabilinu.

  • Hreinar vaxtatekjur námu 10,3 ma.kr. á fyrstu 6 mánuðum ársins.

  • Hreinar þóknunartekjur námu 2,9 ma.kr. á tímabilinu.

  • Gengishagnaður nam samtals 1,4 ma.kr. en gengishagnaður af gjaldmiðlum var 1,7 ma.kr.

  • Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna og skulda var 2,9% á tímabilinu.

  • Tekjuskattur á tímabilinu nam 1,5 ma.kr.

  • Arðsemi eigin fjár var 17,7% á ársgrundvelli.

  • Kostnaðarhlutfall bankans var 56,0% á tímabilinu.

  • Útlán til viðskiptavina námu 466,0 ma.kr. þann 30. júní samanborið við 357,7 ma.kr. í
    árslok 2009. Aukningin er einkum tilkomin vegna nýrra útlána sem bankinn fékk í
    tengslum við eigendabreytingu 8. janúar síðastliðinn.

  • Innlán námu 493,4 ma.kr. samanborið við 495,5 ma.kr. í árslok 2009.

  • Í lok tímabilsins voru 1.142 stöðugildi hjá bankanum samanborið við 1.157 í árslok
    2009.

  • Heildareignir námu 842,3 ma.kr. þann 30. júní 2010 samanborið við 757,3 ma.kr. í
    lok árs 2009. Helstu breytingar á eignum bankans má rekja til yfirtöku Kaupskila á
    87% hlut í Arion banka þann 8. janúar en þá jukust heildareignir bankans um 80,2
    ma.kr. í 837,6 ma.kr. Lánabók bankans óx um 112,8 ma.kr. en skuldabréfaeign
    lækkaði um 32,6 ma.kr. þar sem ríkið fékk 87% af hlut sínum endurgreiddan til baka.

  • Eigið fé bankans í lok júní 2010 var 101,4 ma.kr. en nam 89,9 ma.kr. í árslok 2009.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka: „Uppgjörið fyrir fyrstu sex mánuði ársins er í takt við væntingar og sýnir vaxandi fjárhagslegan styrk bankans. En hið efnahagslega umhverfi er og verður krefjandi og þá ekki síst vegna þeirrar óvissu sem ríkir vegna erlendra lána. Bankinn hefur farið ítarlega yfir hugsanleg áhrif þeirra á efnahag bankans og mun bankinn í öllum tilfellum uppfylla kröfu laganna um 8% eiginfjárhlutfall fjármálastofnanna.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira