06.09.2011
Afkoma Arion banka á fyrri helmingi ársins 2011
Afkoma Arion banka á fyrri helmingi ársins 2011 var jákvæð um 10,2 milljarða króna eftir skatta samanborið við 7,9 milljarða á fyrri helmingi ársins 2010. Er afkoman umfram áætlanir sem skýrist einkum af endurmati á útlánasafni bankans á fyrirtækjasviði. Arðsemi eigin fjár var 20,3% á ársgrundvelli.
Á öðrum ársfjórðungi fór fram lokauppgjör Arion banka við þrotabú Kaupþings banka. Er hálfsársuppgjörið nú fyrsta uppgjör Arion banka þar sem þessir aðilar eiga engar kröfur hvor á annan. Um mikilvægan áfanga er að ræða til einföldunar á efnahagsreikningi Arion banka.
Eiginfjárhlutfall bankans styrktist og var 21,4% í lok tímabilsins sem er vel yfir mörkum FME. Einnig eru lausafjárhlutföll bankans vel yfir settum mörkum. Árshlutareikningurinn er kannaður af endurskoðendum bankans.
Helstu atriði árshlutareikningsins
Hagnaður eftir skatta nam 10,2 mö.kr. á fyrri árshelmingi 2011 samanborið við 7,9 ma.kr. á sama tímabili árið 2010.
Hreinar rekstrartekjur námu alls 24,5 mö.kr. á tímabilinu samanborið við 17,1 ma.kr. árið 2010.
Hreinar vaxtatekjur á tímabilinu námu 11,2 mö.kr. samanborið við 10,3 ma.kr. árið 2010.
Hreinar þóknanatekjur námu 5,1 ma.kr. samanborið við 2,9 ma.kr. á sama tímabili 2010. Aukningin skýrist einkum með tilkomu nýrra dótturfélaga í samstæðuna á seinni hluta ársins 2010.
Endurmat á eignum bankans leiddi til 3,9 ma.kr. virðisaukningar sem bókfærð er í gegnum rekstrarreikning þegar hlutdeild Kaupþings í hækkuninni hafði verið tekin með.
Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 20,3% en var 17,6% á sama tímabili árið 2010.
Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna var 3,2% á tímabilinu samanborið við 2,8% á sama tímabili árið 2010.
Reiknaður tekjuskattur á fyrri helmingi ársins nam 2,5 mö.kr. en var 1,5 ma.kr. fyrir sama tímabil árið 2010. Til viðbótar nam sérstakur bankaskattur 446 milljónum á tímabilinu.
Kostnaðarhlutfall á tímabilinu var 52,4% samanborið við 50,0% á sama tímabili 2010.
Eiginfjárhlutfall var 21,4% samanborið við 16,6% í lok júní 2010 og 19% í árslok 2010. FME gerir kröfu um amk. 16% eiginfjárhlutfall.
Lausafjárhlutfall bankans var 35,0% sem er afar sterkt og vel yfir 20% kröfu FME.
Reiðufjárhlutfall bankans var 16,0%, en FME gerir kröfu um 5%.
Útlán til viðskiptavina námu 447,7 mö.kr. í lok tímabilsins samanborið við 451,2 ma.kr. í lok árs 2010.
Innlán viðskiptavina námu 448,7 mö.kr. samanborið við 457,9 ma.kr. í árslok 2010.
Heildareignir námu 805,3 mö.kr. samanborið við 812,6 ma.kr. í árslok 2010.
Eigið fé bankans í lok tímabilsins var 117,2 ma.kr. en nam 109,5 ma.kr í lok árs 2010.
Á tímabilinu greiddi bankinn arð til ríkisins upp á rúma 6 ma.kr. skv. sérstöku samkomulagi milli Skilanefndar Kaupþings og ríkisins frá september 2009 um greiðslu arðs að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Í lok tímabilsins voru 1.248 stöðugildi hjá samstæðunni, samanborið við 1.142 á sama tímabili árið 2010. Aukningin stafar einkum af innkomu nýrra dótturfélaga í samstæðuna. Þar af voru stöðugildi hjá móðurfélaginu, Arion banka, 947 samanborið við 976 á sama tímabili árið 2010.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Við erum sátt við uppgjör bankans. Þetta er sterkt uppgjör og gefur okkur góðan grunn í því starfi sem framundan er. Umhverfið er og verður áfram krefjandi. Enn er mikil óvissa bæði hér á landi sem og erlendis og því skiptir það miklu að starfsemin hvíli á traustum stoðum. Fjárhagslegur styrkur bankans hefur verið forgangsverkefni hjá okkur ásamt úrlausnarmálum viðskiptavina okkar. Sá árangur sem við höfum náð á þessum sviðum gefur okkur mikilvæga vissu um stöðu bankans sem ekki var til staðar við stofnun hans. Nú getum við beint kröftum okkar í ríkari mæli að verkefnum framtíðarinnar. Þar leggjum við mikla áherslu á að veita viðskiptavinum okkar fjölbreytta fjármögnunarkosti er kemur að kaupum á íbúðarhúsnæði. Arion banki hefur ítrekað tekið frumkvæði í þeim efnum. Fyrr á árinu komum við fram með hagstæð verðtryggð íbúðalán og þann 15. september munum við byrja að bjóða viðskiptavinum okkar hagstæð óverðtryggð íbúðalán, með föstum vöxtum til fimm ára. Binding vaxta í fimm ár er lykilatriði til að takmarka þá óvissu og áhættu sem fylgir breytilegum óverðtryggðum vöxtum fyrir heimilin í landinu.“
Fjölbreyttir lánamöguleikar – Óverðtryggð íbúðalán með fasta vexti til fimm ára
Lögð hefur verið áhersla á það í starfi bankans að bjóða viðskiptavinum fjölbreytta valkosti er kemur að fjármögnun íbúðarhúsnæðis. Fyrr á árinu kynnti bankinn verðtryggð lán sem bera hagstæða vexti eða 4,3%.
Nýverið var tilkynnt að frá og með 15. september muni Arion banki bjóða íbúðalán sem bera hagstæða óverðtryggða vexti sem eru fastir til fimm ára í senn. Annars vegar lán sem nema allt að 60% af veðhlutfalli fasteignar, bera 6,45% fasta óverðtryggða vexti og eru til 25 eða 40 ára. Hins vegar viðbótarlán sem nema frá 60% til 80% af veðhlutfalli fasteignar, bera 7,55% fasta óverðtryggða vexti og eru til allt að 25 ára.
Hér er á ferðinni nýjung á íslenskum fjármálamarkaði þar sem binding hagstæðra, óverðtryggðra vaxta til fimm ára hefur ekki áður boðist lántakendum. Þar að auki geta viðskiptavinir að fimm árum liðnum valið á milli annarra kosta, svo sem að breyta láninu í verðtryggt lán eða greiða það upp án sérstaks uppgreiðslugjalds.
Aukin þjónusta
Breytt skipulag viðskiptabankasviðs hefur gefið góða raun. Kjarni hins nýja skipulags er tilfærsla ákvörðunarvalds frá höfuðstöðvum bankans til útibúanna og þar með nær viðskiptavinum bankans. Þannig er með afdráttarlausum hætti dregið úr miðstýringu. Lögð er áhersla á öfluga þjónustu í sterkum byggðakjörnum með auknu sjálfstæði útibúa, landssvæða og rekstrareininga.
Meniga heimilisbókhald Arion banka er nú aðgengilegt í netbankanum. Meniga er vefur, sérhannaður til að aðstoða notendur við að stjórna heimilisfjármálunum, setja sér markmið og nýta peningana sína sem best.
Gengið var frá kaupum Arion banka á starfsemi SPRON Factoring sem er sérhæft félag á sviði kröfufjármögnunar. Samhliða kröfufjármögnuninni fer fram þjónusta tengd áhættustýringu kröfusafna, viðskiptamannabókhaldi og innheimtu.
Arion banki tók einnig yfir KB Ráðgjöf, sem sérhæfir sig í miðlun lausna á sviði trygginga- og lífeyrismála fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki.
Arion banki og Edda útgáfa, leyfishafi Disney á Íslandi, gerðu með sér samstarfssamning. Samstarfið felur í sér að Disney mun verða áberandi í allri þjónustu bankans við viðskiptavini upp að 16 ára aldri.
Sala fyrirtækja
Undirritaður var samningur um sölu á Rekstrarfélagi Tíu-ellefu ehf. frá Eignabjargi ehf., dótturfélagi Arion banka. Salan fór fram eftir að auglýst hafði verið eftir tilboðum frá áhugasömum fjárfestum.
Samkeppniseftirlitið veitti samþykki sitt 11. maí síðastliðinn fyrir sölu bankans á kjölfestuhlut í Högum hf. Í kjölfarið var gengið frá viðskiptunum og 35,3% virkur hlutur í Högum afhentur til Búvalla, félags sem er í dreifðri eigu lífeyrissjóða og annarra fagfjárfesta.
Eignastýring
Eignir í stýringu jukust um 24 ma.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins og voru alls 642 ma.kr. undir lok tímabilsins. Arion banki er stærsta eignastýringarfyrirtæki landsins.
Arion banki og dótturfélag hans Stefnir hf. eru virkir þátttakendur í uppbyggingu á íslensku atvinnulífi og á fyrri hluta ársins keyptu sjóðir og félög í umsjón Stefnis hluti í félögunum Sjóvá, Sjóklæðagerðin og Hagar.
Árangur í úrlausnarmálum
Arion banki hefur starfað í samræmi við samkomulag sem gert var á milli stjórnvalda og fjármálafyrirtækja í desember á síðasta ári. Samkomulagið kvað á um samræmdar aðgerðir til handa heimilum í greiðsluvanda. Þar var meðal annars kveðið á um framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar og hinnar svokölluðu 110% leiðar.
-Meðalniðurfærsla 5,7 milljónir króna
Arion banki hefur nú lokið afgreiðslu á um 70% umsókna viðskiptavina bankans vegna sértækrar skuldaaðlögunar og 110% leiðarinnar og fyrir liggja ákvarðanir um niðurfærslur lána sem samtals nema um 9,5 milljörðum króna. Gert er ráð fyrir að afgreiðslu eftirstandandi mála ljúki á næstu mánuðum.
Alls óskuðu um 2.450 viðskiptavinir Arion banka eftir því við bankann að fá að falla undir þessi úrræði. Meðalniðurfærsla lána viðskiptavina bankans sem nýtt hafa sér annað hvort 110% leiðina eða sértæka skuldaaðlögun nemur um 5,7 milljónum króna.
Sértæk skuldaaðlögun: 53% allra samþykktra mála hjá Arion banka
Sé sértæk skuldaaðlögun skoðuð sérstaklega þá hafa 700 umsóknir borist Arion banka og þar af hafa um 435 umsóknir verið samþykktar en 10 hafnað. Bankinn hefur því lokið afgreiðslu 64% þeirra umsókna sem borist hafa og samþykkt niðurfærslu lána um samtals 3 milljarða eða að meðaltali 6,8 milljónir.
Samkvæmt upplýsingum frá SFF þá hafa samtals borist 1.640 umsóknir til fjármálastofnanna vegna sértækrar skuldaaðlögunar. Þar af hafa 826 umsóknir verið samþykktar en af þeim tilheyra 53% Arion banka.
- Niðurfærsla að meðaltali 6,3 milljónir króna vegna endurútreiknings gengistryggðra lána
Vegna endurútreiknings gengistryggðra íbúðalána hefur Arion banki fært niður lán sem nemur um 12 milljörðum króna. Að baki þeirri tölu er um 1900 heimili og nemur niðurfærslan því að meðaltali um 6,3 milljónum á heimili.
Arion banki tilkynnti í júní að bankinn muni endurreikna öll þau lán til fyrirtækja og einstaklinga sem kveða á um sömu efnisatriði og Hæstiréttur hefur í dómum sínum talið ólögmæt. Um tvö þúsund lán er að ræða til viðbótar við þau íbúðalán sem þegar hafa verið endurreiknuð. Arion banki stefnir að því að ljúka endurútreikningi í október en niðurstaðan verður kynnt lánþegum eins fljótt og auðið er.
- Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja langt komin
Við úrvinnslu skuldamála fyrirtækja var fyrirtækjum í viðskiptum við Arion banka skipt upp í tvo meginhópa, annars vegar lítil og meðalstór fyrirtæki sem skulda undir 1.000 milljónum króna og falla undir samkomulagið um Beinu brautina, og hins vegar stærri fyrirtæki sem skulda yfir 1.000 milljónir króna.
Í upphafi lagði Arion banki ríka áherslu á stærri fyrirtæki. Um flókin úrlausnarefni var að ræða og nauðsynlegt að beita sértækum lausnum. Vel hefur miðað og er um 80% mála þegar lokið.
Arion banki hefur unnið að úrlausn lítilla og meðalstórra fyrirtækja samkvæmt Beinu brautinni. Bankinn gerði öllum þeim 470 fyrirtækjum sem eru í viðskiptum við bankann og falla undir samkomulagið tilboð fyrir 1. júní 2011. Af þessum 470 málum er ríflega 340 lokið með samkomulagi um úrlausn.
Nýsköpun
Arion banki og Nýsköpunarmiðstöð Íslands skrifuðu undir þriggja ára samstarfssamning um aðkomu Arion banka að rekstri KÍM - Medical Park. KÍM er frumkvöðlasetur fyrir fyrirtæki í heilbrigðistækni og skyldum greinum og eru þegar í kringum 20 fyrirtæki með virka starfsemi á setrinu.
Samstarfsvettvangur Jarðvarmaklasans var stofnaður á fundi í Arion banka sem haldinn var í samstarfi við ráðgjafarfyrirtækið Gekon. Dr. Michael Porter, prófessor við Harvard Business School, var heiðursgestur fundarins og ávarpaði gesti. Arion banki er aðalbakhjarl verkefnisins.
Samfélagsmál
Nýverið skrifaði Arion banki undir samstarfssamning við Hörpu og verður Arion banki einn helsti bakhjarl þeirra viðburða sem Harpa mun standa fyrir.
Arion banki styrkti á tímabilinu Rauða krossinn um eina milljón króna eða sem nemur um eitt þúsund krónum á hvern starfsmann bankans vegna þeirrar hungursneyðar sem ríkir í Austur - Afríku.
Í tilefni af Alþjóðlegu ári skóga árið 2011 gáfu Skógræktarfélag Íslands og Arion banki út kortið „Rjóður í kynnum“ en í því er að finna upplýsingar um 50 áhugaverða útivistarskóga um land allt.
Arion banki kom að nýrri tilhögun úthlutana hjá Hjálparstarfi kirkjunnar með því að kosta útgáfu inneignarkortanna og veita fjárhagslegan stuðning. Til viðbótar mun Arion banki kosta aðstoð fjármálaráðgjafa fyrir skjólstæðinga Hjálparstarfsins.
Starfsfólk Arion banka með stuðningi frá bankanum kom að vinnu við endurbætur á Seljavallalaug. Nauðsynleg var að ráðast í endurbætur á lauginni í kjölfar náttúruhamfara á svæðinu og komu fjölmargir aðilar að verkinu ásamt bankanum og starfsfólki hans. Meðal þess sem var lagfært voru lagnir í laugina, skipt var um þak og klæðningu á búningsklefum.
Arion banki veitti nýverið einnar milljónar krónu styrk til bæði Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri, til að halda við og fegra gamlar byggingar á staðnum og Ólafsdalsfélagsins, sem stendur að endurgerð Búnaðarskólans í Ólafsdal.
Að auki gaf bankinn Landbúnaðarsafninu á Hvanneyri forláta Fort T módel, árgerð 1927, sem verið hefur í eigu Arion banka. Sæmundur Sigmundsson fyrrum sérleyfishafi í Borgarnesi lét gera bílinn upp á sínum tíma.