27.05.2011
Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2011
Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi var jákvæð um 3,0 milljarða króna eftir skatta samanborið við 3,4 milljarða á fyrsta fjórðungi ársins 2010. Arðsemi eigin fjár var 11,3% á ársgrundvelli.
Eiginfjárhlutfall bankans styrktist og var 19,7% í lok tímabilsins sem er vel yfir mörkum FME. Árshlutareikningurinn er óendurskoðaður.
Helstu atriði árshlutareikningsins
Hagnaður eftir skatta nam 3,0 mö.kr. á fyrsta fjórðungi ársins 2011 samanborið við 3,4 ma.kr. á sama tímabili árið 2010.
Hreinar rekstrartekjur námu alls 9,5 mö.kr. á tímabilinu samanborið við 8,2 ma.kr. árið 2010.
Hreinar vaxtatekjur á tímabilinu námu 5,9 mö.kr. samanborið við 5,6 ma.kr. árið 2010.
Hreinar þóknanatekjur námu 2,5 mö.kr. samanborið við 1,5 ma.kr. á sama tímabili 2010. Aukningin skýrist einkum með tilkomu nýrra dótturfélaga.
Arðsemi eigin fjár var 11,3% en var 17,2% á sama tímabili árið 2010.
Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna var 3,4% á tímabilinu samanborið við 3,1% á sama tímabili árið 2010.
Reiknaður tekjuskattur á fyrsta ársfjórðungi nam 1,0 ma.kr. en var 0,7 ma.kr. fyrir sama tímabil árið 2010. Sérstakur bankaskattur nam 67 milljónum á tímabilinu.
Kostnaðarhlutfall á ársfjórðungnum var 51,8% samanborið við 43,7% á sama tímabili ársins 2010 sem skýrist fyrst og fremst af óreglulegum liðum.
Eiginfjárhlutfall var 19,7% samanborið við 19,0% í lok árs 2010. FME gerir kröfu um 16% eiginfjárhlutfall.
Lausafjárhlutfall bankans var 36,0% sem er vel yfir 20% kröfu FME.
Reiðufjárhlutfall bankans var 16,0%, en FME gerir kröfu um 5%.
Útlán til viðskiptavina námu 432,5 mö.kr. í lok tímabilsins samanborið við 451,2 ma.kr. í lok árs 2010.
Innlán viðskiptavina námu 472,4 mö.kr. samanborið við 457,9 ma.kr. í árslok 2010.
Heildareignir námu 802,7 mö.kr., samanborið við 812,6 ma.kr. í árslok 2010.
Eigið fé bankans í lok fyrsta ársfjórðungs 2011 var 112,7 ma.kr. en nam 109,5 ma.kr í lok árs 2010.
Í lok tímabilsins voru 1.273 stöðugildi hjá samstæðunni, samanborið við 1.260 í lok árs 2010. Þar af voru stöðugildi hjá Arion banka 965 samanborið við 981 í árslok 2010.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Afkoma fyrsta ársfjórðungs er í samræmi við áætlanir. Á undanförnum mánuðum höfum við haldið áfram á þeirri braut að styrkja grunnstoðir bankans og er eiginfjárhlutfall hans nú tæp 20% sem ber fjárhagslegum styrk gott vitni.
Við höfum lagt ríka áherslu á úrlausnarmál viðskiptavina okkar en þeirri vinnu miðar vel og mun klárast á þessu ári. Einnig höfum við unnið hörðum höndum að því að koma eignarhaldi fyrirtækja, sem bankinn hefur tekið yfir, frá bankanum. Eru nú þrjú söluferli í gangi og ber þar hæst salan á Högum en fyrirhugað er að klára það ferli síðar á árinu með skráningu í Kauphöll. Við höfum orðið vör við mikinn áhuga og er það til vitnis um þá miklu getu sem er til staðar í hagkerfinu. Sama má segja um útlán banka, útlánagetan er til staðar en eftirspurnin er takmörkuð. Í þessu samhengi er mikilvægt fyrir efnahagsframvindu Íslands að eyða stjórnarfarslegri og lagalegri óvissu sem nú er til staðar og virkja þannig slagkraftinn og þá miklu fjárfestingargetu og fjárfestingarþörf sem býr í íslenska hagkerfinu sem og þá útlánagetu sem er í bankakerfinu.“
Þjónusta Arion banka
Í kjölfar umfangsmikillar stefnumótunarvinnu sem fram fór á árinu 2010 var unnið að innleiðingu nýrrar stefnu á fyrsta ársfjórðungi ársins. Innleiðingarverkefnin snerta öll svið bankans og markmið þeirra er bætt þjónusta til handa viðskiptavinum bankans.
Unnið hefur verið að breytingum á skipulagi viðskiptabankasviðs meðal annars með því að færa ákvörðunarvald frá höfuðstöðvum bankans til útibúanna og þar með nær viðskiptavinum bankans. Markmið breytinganna er að starfsmenn bankans séu betur í stakk búnir til að þekkja og uppfylla þarfir viðskiptavina; að vinna með viðskiptavinum bankans að markmiðum sem eru þeim mikilvæg.
Í samstarfi við Háskólann á Bifröst hafa starfsmenn Arion banka sótt sérsniðar námsbrautir í því augnamiði að auka færni þeirra og þar með gæði þeirrar þjónustu og ráðgjafar sem viðskiptavinir sækja til bankans.
Að auki hafa verið teknir upp nýir þjónustuþættir í starfsemi útibúa með það að markmiði að bjóða viðskiptavinum bankans upp á fjölbreyttari sem og meiri þjónustu. Er nú meðal annars boðið upp á verðbréfa- og lífeyrisþjónustu í útibúum bankans.
Á fyrstu mánuðum ársins var unnið að undirbúningi nýrra hagstæðra verðtryggðra íbúðalána sem kynnt voru viðskiptavinum bankans í byrjun maímánaðar. Annars vegar lán sem nema allt að 60% veðhlutfalli fasteignar, bera 4,30% fasta vexti og eru til 25 eða 40 ára. Hins vegar viðbótarlán sem nema frá 60% til 80% veðhlutfalli fasteignar, bera 5,40% fasta vexti og eru til allt að 25 ára.
Útibú Arion banka að Suðurlandsbraut, í Árbæ og í Grafarvogi voru sameinuð í nýtt útibú bankans á Höfða, sem opnað var miðvikudaginn 23. mars. Við sameiningu þessara útibúa lauk mikilvægum áfanga í umfangsmiklu hagræðingarferli í útibúaneti bankans. Hefur útibúum bankans verið fækkað um 15 og rekur Arion banki nú 24 öflug útibú.
Þrír nýir sjóðir Stefnis bættust á fyrsta ársfjórðungi við fjölbreytt sjóðaúrval sem bankinn býður viðskiptavinum sínum. Nýir sjóðir koma til móts við breytta þörf viðskiptavina. Sjóðirnir eru Stefnir – Eignaval erlent, Stefnir – Lausafjársjóður og Stefnir – Ríkisverðbréfasjóður stuttur.
Nokkrir af sjóðum Stefnis eru metnir af alþjóðlegu sjóðamatsfyrirtækjunum Morningstar og Lipper og nýlega fékk sjóðurinn KMS BRIC fjórar stjörnur af fimm mögulegum frá Morningstar. Einnig gaf Lipper sjóðnum KMS Global Equity fjóra í einkunn af fimm mögulegum.
Endurútreikningi erlendra lána lokið
Endurútreikningur erlendra fasteignalána einstaklinga var umfangsmikið verkefni í upphafi árs. Strax í lok febrúarmánaðar hafði Arion banki birt 98% þeirra lána sem áttu rétt á endurútreikningi. Viðskiptavinir hafa tekið vel við sér og valið þá leið sem best hentar þeim. Þegar hafa um 73% viðskiptavina bankans staðfest endurútreikning sinna lána.
Úrlausnarmál - 90% fyrirtækja Beinu brautarinnar fengið tilboð
Úrlausnarmálum einstaklinga hefur miðað vel á tímabilinu og hafa nú alls um 14.000 viðskiptavinir bankans nýtt sér þær lausnir sem í boði hafa verið. Ráðgjafaþjónusta Arion banka sem tók til starfa á árinu 2010 sinnir úrlausnarmálum einstaklinga en þar starfa allir helstu sérfræðingar bankans í þessum málum.
Vel hefur miðað í úrlausnarmálum fyrirtækja og sér fyrir enda þeirrar vinnu. Mun úrvinnslu skuldamála fyrirtækja ljúka síðar á árinu.
Af þeim 470 fyrirtækjum sem falla undir Beinu brautina höfðu í lok fyrsta ársfjórðungs um 330 fengið tilboð frá Arion banka um afgreiðslu þeirra mála. Þar af var búið að ljúka ríflega 200 málum. Í upphafi maímánaðar höfðu 420 fyrirtæki, eða 90%, fengið tilboð í anda Beinu brautarinnar frá bankanum.
Í heildina eru það um eitt þúsund af þeim fyrirtækjum sem eru í viðskiptum við Arion banka sem þurfa á fjárhagslegri endurskipulagningu að halda. Komin er ákvörðun í málum rúmlega 700 þeirra.
Sala yfirtekinna félaga og annarra eigna
Mikilvægir áfangar náðust á fyrsta ársfjórðungi er kemur að sölu fyrirtækja og annarra eigna sem Arion banki hefur tekið yfir. Gengið var frá sölu bifreiðaumboðsins Heklu á tímabilinu og lokið var við fyrsta hluta í söluferli Haga með sölu á 34% kjölfestuhlut í félaginu. Fyrirhugað er að skrá félagið á markað síðar á árinu. Verslunarkeðja 10-11 er í söluferli og undir lok marsmánaðar var BM Vallá auglýst til sölu.
Samfélagsmál
Arion banki leggur áherslu á að vera virkur þátttakandi í þjóðmálaumræðunni. Greiningardeild bankans sendi frá sér efnahagsspá sem vakti athygli og bankinn hefur staðið fyrir fundum um efnahagshorfur í höftum, Icesave III, uppbyggingu íslenska hlutabréfamarkaðarins, myndlist og samspil eldgosa og viðskipta svo það helsta sé nefnt.
Arion banki hefur á undanförnum mánuðum stutt við bakið á fjölmörgum félagasamtökum og stofnunum með margvíslegum hætti. Meðal annars hafa verið undirritaðir samstarfssamningar við Skógræktarfélag Íslands, Golfsamband Íslands vegna mótaraðar fyrir unglinga, Fimleikasamband Íslands og Hjálparstofnun kirkjunnar.
Horfur
Þegar úrlausnarmálum lýkur hjá Arion banka síðar á árinu mun mikilvægur áfangi nást fyrir bæði bankann sem og viðskiptavini hans sem þá geta beint kröftum sínum að uppbyggingu til framtíðar. Þannig mun hefðbundin bankastarfsemi einnig verða fyrirferðarmeiri eftir því sem líður á árið eins og ný íbúðalán Arion banka bera vott um.
Mikil óvissa ríkir enn í efnahagslífinu og það hefur áhrif á starfsumhverfi fjármálastofnanna og fyrirtækja hér á landi, en öll óvissa er til þess fallin að hægja á efnahagsuppbyggingu í landinu og draga úr fjárfestingum, sem nú eru í sögulegu lágmarki. Forsenda hagvaxtar er að fjárfesting nái sér á strik, enda skapar fjárfesting bæði atvinnu og eftirspurn.
Skuldabréfamarkaðurinn hefur í raun verið eini virki markaðurinn undanfarin ár. Nú hins vegar er uppbygging hlutabréfamarkaðar á Íslandi á næsta leyti og mun skráning Haga í Kauphöll verða lyftistöng í þá átt. Þá standa vonir til að fleiri fyrirtæki bætist í hópinn á næstu árum.
Ástæða er til bjartsýni til lengri tíma. Ísland kemur ágætlega út samanborið við önnur Evrópulönd á ýmsum sviðum. Ríkisfjármálin hafa til að mynda verið tekin föstum tökum, það ríkir nú jafnvægi í viðskiptum við útlönd og allt bendir til þess að skuldastaða þjóðarbúsins sé viðráðanleg. En ýmis krefjandi verkefni eru hins vegar framundan og skiptir máli að rétt sé haldið á málum svo hægt sé að nýta þau tækifæri sem framundan eru.