23.06.2012

Af­koma Arion banka á fyrsta árs­fjórð­ungi 2012

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 var jákvæð um 4,5 milljarða króna eftir skatta samanborið við 3,0 milljarða á árinu 2011. Arðsemi eigin fjár var 16,5% samanborið við 11,3% á sama tímabili árið 2011. Árshlutareikningurinn fyrir fyrsta ársfjórðung 2012 er óendurskoðaður.

Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 20,2% en í lok fyrsta ársfjórðungs 2011 var það 19,2%, krafa Fjármálaeftirlitsins kveður á um 16% eiginfjárhlutfall.

Helstu atriði árshlutareikningsins:
  • Hagnaður eftir skatta nam 4,5 mö.kr. samanborið við 3,0 ma.kr. á sama tímabili 2011.

  • Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 2,5 mö.kr. samanborið við 3,1 ma.kr. á síðasta ári.

  • Rekstrartekjur námu alls 10,9 mö.kr. samanborið við 9,5 ma.kr. 2011.

  • Hreinar vaxtatekjur námu 6,2 mö.kr. samanborið við 5,9 ma.kr. árið 2011.

  • Arðsemi eigin fjár var 16,5% en var 11,3% árið 2011. Arðsemi af reglulegri starfsemi var 9,1% samanborið við 12,7% á sama tímabili í fyrra.

  • Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna var 3,1% á tímabilinu samanborið við 3,4% árið 2011.

  • Eiginfjárhlutfall var 20,2% samanborið við 19,2% á sama tíma 2011 og 21,2% í lok árs 2011. FME gerir kröfu um 16%.

  • Lausafjárhlutfall bankans var 30,2% sem er vel yfir 20% kröfu FME.

  • Reiðufjárhlutfall bankans var 13,9%, en FME gerir kröfu um 5%.

  • Útlán til viðskiptavina í lok tímabilsins námu 584,2 mö.kr., samanborið við 432,5 ma.kr. á sama tíma 2011. Aukningin skýrist fyrst og fremst af yfirtöku á íbúðalánasafni Kaupþings undir lok árs 2011.

  • Heildareignir námu 899,4 mö.kr., samanborið við 802,7 ma.kr. í lok mars 2011.

  • Eigið fé bankans í lok mars 2012 var 119,0 ma.kr. en nam 112,7 mö.kr. í lok mars 2011.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Uppgjörið fyrir fyrsta ársfjórðung er gott. Uppgjörið ber vott um þann stöðugleika sem verið hefur í grunnrekstri bankans undanfarin misseri. Það er einnig jákvætt hve vel fjárfestar hafa tekið sértryggðri skuldabréfaútgáfu bankans, jafnt verðtryggðri útgáfu sem og óverðtryggðri. Útgáfan stuðlar að aukinni fjölbreytni í fjármögnun bankans sem er afar mikilvægt. Hins vegar hefur óvissa sem tengist gengislánum og dómum Hæstaréttar dregið verulega úr hraða við úrvinnslu skuldamála. Þessi óvissa er óþægileg fyrir viðskiptavini okkar, en til að eyða óvissunni þarf Hæstaréttur að fella fleiri dóma og er brýnt að það verði sem fyrst. En uppgjörið sýnir að bankinn er fjárhagslega sterkur og vel í stakk búinn til að mæta þörfum einstaklinga og atvinnulífs.“

Afkomutilkynning 1F 2012

Árshlutareikningur 31.03.2012

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira