21.05.2014

Af­koma Arion banka á fyrsta árs­fjórð­ungi 2014

Hagnaður Arion banka á fyrstu þremur mánuðum ársins 2014 nam 2,9 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 1,4 milljarða króna á sama tímabili 2013. Arðsemi eigin fjár var 7,8% samanborið við 4,3% á sama tímabili árið 2013. Arðsemi af kjarnastarfsemi var 5,9% en var 7,6% á sama tímabili árið 2013. Heildareignir námu 933,1 milljarði króna samanborið við 938,9 milljarða króna í árslok 2013.

Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 22,5% en var 23,6% í árslok 2013.

Helstu atriði árshlutareikningsins:
  • Hagnaður eftir skatta nam 2,9 mö.kr. samanborið við 1,4 ma.kr. á sama tímabili 2013.

  • Tekju- og bankaskattar námu samtals 2,0 mö.kr. samanborið við 0,7 ma.kr. á sama tímabili 2013.

  • Hagnaður af kjarnastarfsemi nam 1,6 mö.kr. samanborið við 2,1 ma.kr. á sama tímabili 2013.

  • Rekstrartekjur námu 9,0 mö.kr. samanborið við 9,1 ma.kr. á sama tímabili árið 2013.

  • Hreinar vaxtatekjur námu 5,5 mö.kr. samanborið við 6,3 ma.kr. á sama tímabili 2013. Lækkunin skýrist einkum af lægri verðbólgu.

  • Hreinar þóknanatekjur námu 3,1 ma.kr. samanborið við 2,4 ma.kr. á sama tímabili 2013. Aukningin er einkum tilkomin vegna hærri þóknanatekna hjá eignastýringu og af greiðslukortum.

  • Annar rekstrarkostnaður nam 2,7 mö.kr. samanborið við 3,3 ma.kr. á sama tímabili 2013.

  • Hrein virðisbreyting er jákvæð á tímabilinu og nemur 2,0 mö.kr. í samanburði við 322 m.kr. gjaldfærslu á sama tímabili 2013. Virðisaukning útlána til fyrirtækja nemur 2,0 mö.kr. á fyrstu þremur mánuðum ársins en niðurfærsla útlána til einstaklinga nemur 0,8 mö.kr. Virðisaukning annarra eigna nemur 0,7 m.kr. á tímabilinu.

  • Arðsemi eigin fjár var 7,8% en var 4,3% á sama tímabili 2013. Arðsemi af kjarnastarfsemi var 5,9% samanborið við 7,6% á sama tímabili 2013.

  • Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna var 2,6% en var 3,1% á sama tímabili árið 2013.

  • Kostnaðarhlutfall var 69,0% en var 72,6% á sama tímabili 2013. Kostnaðarhlutfall af kjarnastarfsemi nam 66,8% samanborið við 66,7% á sama tímabili 2013.

  • Heildareignir námu 933,1 ma.kr., samanborið við 938,9 ma.kr. í árslok 2013.

  • Eigið fé bankans var 147,8 ma.kr. en nam 144,9 mö.kr. í lok árs 2013.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Afkoma bankans á fyrsta ársfjórðungi er viðunandi. Hagnaðurinn eykst nokkuð samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs, þrátt fyrir aukna skattbyrði, og er arðsemi eiginfjár 7,8%. Þrátt fyrir það lækka tekjur bankans og þá fyrst og fremst vegna lægri vaxtamunar þar sem verðbólga er lægri á tímabilinu en fyrir ári síðan. Að auki hafa markaðsaðstæður verið með þeim hætti að virði eigna bankans í verðbréfum og gjaldeyri lækkar á tímabilinu. Við erum þó ánægð með að þóknanatekjur hækka frá því sem var á sama tímabili fyrir ári en markvisst hefur verið unnið að því á undanförnum misserum að styrkja grundvöll þóknanatekna bankans. Hækkunina má fyrst og fremst rekja til eignastýringar og kortaviðskipta. Einnig hefur á undanförnu ári náðst góður árangur hvað rekstrarkostnað bankans varðar en hann lækkar á milli tímabila og starfsfólki bankans fækkar.

Mikilvægur áfangi náðist í upphafi árs þegar bankinn fékk lánshæfismatið BB+ frá Standard & Poor‘s, fyrstur íslensku bankanna. Lánshæfismat frá alþjóðlegu fyrirtæki greiðir leið okkar að erlendum lánsfjármörkuðum. Í dag er Arion banki hins vegar fullfjármagnaður og engin endurfjármögnunarþörf til staðar á næstu árum en við munum engu að síður, þegar markaðsaðstæður eru réttar, sækja okkur lánsfé og þá með það að markmiði að bæta gæði fjármögnunar bankans og lækka fjármagnskostnað.“

Afkomutilkynning Arion banka 3M 2014
Árshlutareikningur samstæðu 31.03.2014
Afkomukynning Arion banka 3M 2014

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira