28.11.2012

Af­koma Arion banka á fyrstu níu mán­uð­um ársins 2012

Afkoma Arion banka á fyrstu níu mánuðum ársins 2012 var um 14,5 milljarða króna eftir skatta samanborið við 13,6 milljarða króna fyrstu níu mánuði ársins 2011. Arðsemi eigin fjár var 15,9% samanborið við 17,6% á sama tímabili árið 2011. Arðsemi af reglulegri starfsemi var 11,9% en var 11,3% á sama tímabili árið 2011. Árshlutareikningurinn fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2012 er óendurskoðaður.

Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 22,5% en í lok árs 2011 var það 21,2%.

Helstu atriði árshlutareikningsins:

  • Hagnaður eftir skatta nam 14,5 mö.kr. samanborið við 13,6 ma.kr. á sama tímabili árið 2011.

  • Hagnaður þriðja ársfjórðungs nam 3,3 mö.kr. samanborið við 3,5 ma.kr. á þriðja ársfjórðungi 2011.

  • Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 10,9 mö.kr. samanborið við 8,9 ma.kr. fyrstu níu mánuði ársins 2011.

  • Rekstrartekjur námu alls 34,4 mö.kr. samanborið við 34,0 ma.kr. fyrir sama tímabil á árinu 2011.

  • Hreinar vaxtatekjur námu 20,1 ma.kr. samanborið við 16,8 ma.kr. fyrstu níu mánuði ársins 2011, en aukningin er einkum tilkomin vegna stærra lánasafns eftir kaup bankans á íbúðalánasafni frá Kaupþingi.

  • Arðsemi eigin fjár var 15,9% en var 17,6% á sama tímabili í fyrra. Arðsemi af reglulegri starfsemi var 11,9% samanborið við 11,3% á sama tímabili í fyrra.

  • Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna var 3,3% á tímabilinu samanborið við 3,2% á sama tímabili í fyrra.

  • Launakostnaður hækkar um 7% milli ára, m.a. vegna nýs fjársýsluskatts á laun starfsmanna fjármálafyrirtækja, sem nemur 5,45%.

  • Reiknaður tekjuskattur nam 3,4 mö.kr. samanborið við 3,1 ma.kr. á sama tímabili árið 2011, en hlutfallslega hærri tekjuskattur er m.a. tilkominn vegna nýs 6% skatts á hagnað fjármálafyrirtækja umfram 1 ma.kr.

  • Eiginfjárhlutfall var 22,5% samanborið við 21,2% í árslok 2011.

  • Lausafjárhlutfall bankans var 31% sem er vel yfir 20% kröfu FME.

  • Reiðufjárhlutfall bankans var 18%, en FME gerir kröfu um 5%.

  • Útlán til viðskiptavina í lok tímabilsins námu 572,5 mö.kr., samanborið við 561,6 ma.kr. í árslok 2011.

  • Heildareignir námu 876,2 mö.kr., samanborið við 892,1 ma.kr. í árslok 2011.

  • Eigið fé bankans í lok september 2012 var 128,4 ma.kr. en nam 114,6 mö.kr. í lok árs 2011.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Afkoma fyrstu níu mánuði ársins er vel viðunandi og í samræmi við okkar áætlanir. Það eru jákvæð merki í rekstrinum. Arðsemi af reglulegri starfsemi bankans þessa fyrstu níu mánuði ársins er um 12% sem er vel ásættanlegt. Enn fremur er uppgjörið nú frekari staðfesting á þeim stöðugleika sem verið hefur í rekstri bankans undanfarin misseri og er okkur mjög mikilvægur.

Bankinn hefur á síðustu mánuðum bætt við nýjum þjónustuþáttum sem vel hefur verið tekið af viðskiptavinum okkar. Þar má nefna Startup Reykjavík sem er ætlað frumkvöðlum og nýsköpunarfyrirtækjum, Arion banka appið, bílafjármögnun í samstarfi við FÍB og nýjar lausnir fyrir foreldra í fæðingaorlofi. Við leggjum mikið upp úr því að vera áfram í forystu í vöruþróun á fjármálamarkaði.

Það er mikilvægt fyrir okkur að viðhalda sterku eiginfjárhlutfalli en í septemberlok var það 22,5% og er það vitnisburður um fjárhagslegan styrk bankans. Umhverfið verður áfram krefjandi. Enn er nokkur lagaleg óvissa, þótt úr henni hafi dregið. Einnig er óvissa um stöðu stærstu atvinnuvega og fjárfesting hefur ekki náð sér á strik svo nokkru nemi. Þá er margt óljóst um afnám gjaldeyrishafta og áfram blikur á lofti í alþjóðlegu umhverfi. Það er jákvætt að á undanförnum misserum hefur mikill árangur náðst í uppbyggingu bankans og raunar í íslensku efnahagsumhverfi þannig að grunnundirstöður áframhaldandi uppbyggingar eru fyrir hendi“.

Árshlutareikningur 30.09.2012
Árshlutareikningur 30.09.2012 - kynning
Afkomutilkynning 30.09.2012

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira