31.08.2012

Af­koma Arion banka á fyrstu sex mán­uð­um ársins 2012

Afkoma Arion banka á fyrri helmingi ársins 2012 var jákvæð um 11,2 milljarða króna eftir skatta samanborið við 10,2 milljarða króna á árinu 2011. Arðsemi eigin fjár var 18,8% samanborið við 20,3% á sama tímabili árið 2011. Arðsemi af reglulegri starfsemi var 11,8% en var 11,2% á sama tímabili árið 2011. Árshlutareikningurinn fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2012 er kannaður af endurskoðendum bankans.

Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 22,3% en í lok annars ársfjórðungs 2011 var það 21,4%. Krafa Fjármálaeftirlitsins kveður á um 16% eiginfjárhlutfall.

Helstu atriði árshlutareikningsins:
  • Hagnaður eftir skatta nam 11,2 mö.kr. samanborið við 10,2 ma.kr. á sama tímabili 2011.

  • Hagnaður annars ársfjórðungs nam 6,8 mö.kr. samanborið við 7,2 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi 2011.

  • Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 7,0 mö.kr. samanborið við 5,8 ma.kr. á síðasta ári.

  • Rekstrartekjur námu alls 24,9 mö.kr. samanborið við 24,5 ma.kr. 2011.

  • Hreinar vaxtatekjur námu 13,9 mö.kr. samanborið við 11,2 ma.kr. árið 2011.

  • Arðsemi eigin fjár var 18,8% en var 20,3% árið 2011. Arðsemi af reglulegri starfsemi var 11,8% samanborið við 11,2% á sama tímabili í fyrra.

  • Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna var 3,4% á tímabilinu samanborið við 3,2% árið 2011.

  • Launakostnaður hækkar um 12% milli ára, m.a. vegna nýs fjársýsluskatts á laun starfsmanna fjármálafyrirtækja sem nemur 5,45%.

  • Reiknaður tekjuskattur nam 2,9 mö.kr. samanborið við 2,5 ma.kr. á sama tímabili 2011, sem er m.a vegna nýs 6% skatts á hagnað fjármálafyrirtækja umfram 1 ma.kr.

  • Eiginfjárhlutfall var 22,3% samanborið við 21,4% á sama tíma 2011.

  • Lausafjárhlutfall bankans var 32% sem er vel yfir 20% kröfu FME.

  • Reiðufjárhlutfall bankans var 14%, en FME gerir kröfu um 5%.

  • Útlán til viðskiptavina í lok tímabilsins námu 578,9 mö.kr., samanborið við 447,7 ma.kr. á sama tíma 2011. Aukningin skýrist fyrst og fremst af yfirtöku á íbúðalánasafni Kaupþings undir lok árs 2011.

  • Heildareignir námu 880,1 mö.kr., samanborið við 805,3 ma.kr. í lok júní 2011.

  • Eigið fé bankans í lok júní 2012 var 125,1 ma.kr. en nam 117,2 mö.kr. í lok júní 2011.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Afkoma bankans fyrstu sex mánuði ársins er viðunandi og í samræmi við okkar væntingar. Ég er ánægður með þann stöðugleika sem uppgjörið sýnir. Afkoma bankans af reglulegri starfsemi var ásættanleg en þrátt fyrir góðan rekstur þá viljum við sjá þóknanatekjur bankans hækka og kostnað við rekstur bankans lækka. Að þessum þáttum munum við vinna á næstu misserum.

Á tímabilinu höfum við selt hluti í félögum sem við höfum þurft að taka yfir og má þar nefna hluti í Högum, N1, BM Vallá og Pennanum. Þetta hefur gengið vel og hafði jákvæð áhrif á afkomu bankans upp á um tvo milljarða króna. Einnig hefur virðisbreyting útlána jákvæð áhrif sem nemur rúmum þremur milljörðum króna.

Við höfum á þessum fyrstu mánuðum ársins unnið að því að auka fjölbreyttni í fjármögnun bankans með útgáfu sértryggðra skuldabréfa, jafnt verðtryggðra sem óverðtryggðra. Markaðurinn hefur tekið útgáfu bankans með jákvæðum hætti og munum við halda áfram á þeirri braut.

Eitt helsta verkefni okkar á tímabilinu og fram á veg snýr að þjónustu við okkar viðskiptavini. Við leitum stöðugt leiða til að gera þjónustu okkar enn betri og eru í gangi innan bankans fjölmörg stór verkefni sem öll miða að þessu marki. Rík áhersla hefur verið á vöruþróun og nýlega kynntum við nýtt snjallsímaforrit, Arion banka appið, sem gerir notendum mögulegt að framkvæma margþættar aðgerðir með afar einföldum og þægilegum hætti í símanum. Það er ekki annað að sjá en að viðskiptavinir okkar kunni vel að meta þær nýju vörur og þá þjónustuþætti sem bankinn hefur kynnt til leiks á undanförnum misserum.“

Afkomutilkynning 1H 2012

Árshlutareikningur 30.06.2012

Árshlutareikningur 30.06.2012 - kynning

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira