12.05.2015

Af­koma Arion banka á fyrstu þrem­ur mán­uð­um ársins 2015

Hagnaður Arion banka á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015 markast mjög af óreglulegum liðum. Þar hafa mest áhrif einskiptisatburðir eins og skráning og sala bankans á hlutum í fasteignafélaginu Reitum og alþjóðlega drykkjaframleiðandanum Refresco Gerber. Hagnaður bankans á tímabilinu nam 14,9 milljörðum króna samanborið við 2,9 milljarða króna á sama tímabili 2014. Arðsemi eigin fjár var 35,1% samanborið við 7,8% á sama tímabili árið 2014. Hagnaður af reglulegri starfsemi á tímabilinu nam 4,0 milljörðum króna samanborið við 1,7 milljarða á sama tímabili 2014. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi nam 9,8% á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 4,6% á sama tímabili 2014. Heildareignir námu 1.004,3 milljörðum króna samanborið við 933,7 milljarða króna í árslok 2014.

Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 23,9% en var 26,3% í árslok 2014. Hlutfall eiginfjárþáttar A nam 21,2% samanborið við 21,8% í lok árs 2014.

Helstu atriði árshlutareikningsins

  • Hagnaður eftir skatta nam 14,9 mö.kr. samanborið við 2,9 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 4,0 milljörðum króna samanborið við 1,7 milljarð króna á sama tímabili 2014.

  • Eiginfjárhlutfall nam 23,9% í lok tímabils samanborið við 26,3% í árslok 2014.

  • Arðsemi eigin fjár var 35,1% samanborið við 7,8% á sama tímabili 2014. Af reglulegri starfsemi nam arðsemin 9,8% á tímabilinu, samanborið við 4,6% á fyrsta ársfjórðungi 2014.

  • Hreinar vaxtatekjur námu 5,8 mö.kr. samanborið við 5,5 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Hreinar þóknanatekjur námu 3,8 mö.kr. samanborið við 3,1 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Rekstrartekjur hækka á milli ára og námu 21,8 mö.kr. samanborið við 9,0 ma.kr. á sama tímabili 2014. Mikil hækkun rekstrartekna er einkum tilkomin vegna söluhagnaðar og hækkunar á verðmati á eignarhlut í Reitum fasteignafélagi hf. og Refresco Gerber í tengslum við skráningu félaganna á markað.

  • Hrein virðisbreyting er jákvæð á tímabilinu og nemur 1,8 ma.kr., samanborið við 2,0 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Tekju- og bankaskattar námu samtals 2,5 mö.kr. samanborið við 1,9 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Kostnaðarhlutfall var 29,3% en var 69,0% á sama tímabili 2014. Af reglulegri starfsemi nam kostnaðarhlutfall 53,2% samanborið við 69% á fyrsta ársfjórðungi 2014.

  • Eigið fé bankans var 177,1 ma.kr. en nam 162,2 mö.kr. í lok árs 2014.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Afkoman á fyrsta ársfjórðungi þessa árs er mjög góð. Afkoman er vel umfram væntingar þar sem betur tókst til við skráningu og sölu á hluta af eigarhlutum bankans í tveimur félögum, í alþjóðlega drykkjarvöruframleiðandanum Refresco Gerber og í Reitum fasteignafélagi. Þannig markast uppgjörið með jákvæðum hætti af þessum óreglulegu liðum og þar sem um fyrsta ársfjórðung er að ræða eru áhrifin mikil á helstu kennitölur. Þetta er vissulega góð og sterk byrjun á árinu en það er ljóst að óreglulegir liðir munu ekki hafa þetta mikil áhrif á afkomu bankans það sem eftir lifir árs.

Regluleg starfsemi bankans gekk vel á fyrsta ársfjórðingi og skilar ágætri afkomu. Arðsemi reglulegrar starfsemi er tæplega 10% á tímabilinu. Við höldum áfram að vinna að því að styrkja grunnrekstur bankans. Við höfum þar lagt mikla áherslu á að auka hlutdeild þóknanatekna í heildartekjum bankans og jukust þær um 19% miðað við sama tímabil fyrir ári. Af þóknanatekjum bankans koma rúm 80% frá fyrirtækjum en tæp 20% úr þjónustu við einstaklinga í viðskiptabankanum.

Sá mikilvægi áfangi náðist á tímabilinu að bankinn gaf út skuldabréf í evrum sem nam 300 milljónum evra, eða um 45 milljörðum króna. Um var að ræða stærstu skuldabréfaútgáfu íslensks banka í fjölmörg ár. Útgáfan sýnir vel þann árangur sem hefur náðst hér á landi í efnahagsmálum sem og endurspeglar útgáfan trú fjárfesta á bankanum og vinnu hans undanfarin ár.

Á fjórðungnum fór fjöldi heimsókna í Arion appið í fyrsta skipti fram úr fjölda heimsókna í netbanka í einstökum mánuði. Þessi þjónusta hefur opnað nýjar víddir fyrir viðskiptavini í aðgengi og þjónustu og við sjáum þetta þróast hraðar en metnaðarfull markmið okkar stóðu til. Nú eru um 40 þúsund virkir notendur að Arion appinu. Þetta endurspeglar umbreytingu i bankaþjónustu og við sjáum mikla fjárfestingu okkar í þessum tæknilausnum skila sér til viðskiptavina.“

Fundur með markaðsaðilum

Arion banki mun halda símafund á ensku fyrir markaðsaðila, miðvikudaginn 13. maí klukkan 9:00. Á fundinum mun Stefán Pétursson, fjármálastjóri Arion banka, fara yfir helstu atriði í uppgjöri bankans. Áhugasamir geta sent tölvupóst á ir@arionbanki.is fá í kjölfarið sendar nánari upplýsingar.

Afkomutilkynning Arion Banka 3 M 2015
Árshlutareikningur Arion banka 31. mars 2015
Fjárfestakynning Arion banka 3 M 2015

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira