01.12.2011
Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2011
Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi ársins 2011 var jákvæð um 3,5 milljarða króna eftir skatta en árshlutareikningurinn inniheldur reikninga bankans og dótturfélaga á samstæðugrunni. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður bankans 1 milljarður króna. Hagnaður Arion banka á fyrstu níu mánuðum ársins var 13,6 milljarðar króna, samanborið við 8,9 milljarða króna á sama tímabili árið 2010.
Arðsemi eigin fjár fyrstu 9 mánuði ársins var 17,6% á ársgrundvelli. Arðsemi af reglulegri starfsemi á ársgrundvelli var rúmlega 10%.
Eiginfjárhlutfall bankans styrktist og var 21,8% í lok september. Lausafjárhlutföll bankans eru sterk og vel yfir settum mörkum FME. Árshlutareikningurinn er óendurskoðaður.
Skattar og önnur opinber gjöld á tímabilinu námu samtals um 4,4 milljörðum króna. Þar af nam reiknaður tekjuskattur 3,1 milljarði króna, sérstakur bankaskattur 684 milljónum króna og atvinnutryggingagjald 607 milljónum króna. Að auki voru greiddar 43 milljónir króna til embættis umboðsmanns skuldara og 158 milljónir króna til FME.
Helstu atriði árshlutareikningsins fyrstu níu mánuði ársins 2011
Hagnaður eftir skatta nam 13,6 mö.kr. fyrstu níu mánuði ársins 2011. Þar af eru 3,8 milljarðar tilkomnir vegna endurmats á lánasafni bankans á fyrirtækjasviði. Hagnaður sama tímabils á árinu 2010 var 8,9 ma.kr.
Hreinar rekstrartekjur námu alls 34,0 mö.kr. á tímabilinu samanborið við 23,2 ma.kr. á sama tímabili árið 2010.
Hreinar vaxtatekjur á tímabilinu námu 16,8 mö.kr. samanborið við 16,4 ma.kr. á sama tímabili árið 2010.
Hreinar þóknanatekjur námu 7,6 mö.kr. samanborið við 4,1 ma.kr. á sama tímabili 2010. Aukningin skýrist einkum af tilkomu nýrra dótturfélaga í samstæðuna á seinni hluta ársins 2010.
Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 17,6% en var 10,4% á sama tímabili árið 2010.
Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna var 3,2% á tímabilinu samanborið við 3,0% á sama tímabili árið 2010.
Reiknaður tekjuskattur á fyrstu níu mánuðum ársins nam 3,1 ma.kr. en var 2,8 ma.kr. fyrir sama tímabil árið 2010. Til viðbótar nam sérstakur bankaskattur 684 m.kr. á tímabilinu og atvinnutryggingagjald nam 607 m.kr.
Kostnaðarhlutfall á tímabilinu var 52,2% samanborið við 57,3% á sama tímabili 2010.
Eiginfjárhlutfall var 21,8% samanborið við 18,3% í lok september 2010 og 19% í árslok 2010. FME gerir kröfu um 16% eiginfjárhlutfall hið minnsta.
Lausafjárhlutfall bankans var 36,0% sem er afar sterkt og vel yfir 20% kröfu FME.
Reiðufjárhlutfall bankans var 16,0%, en FME gerir kröfu um 5%.
Útlán til viðskiptavina námu 444,1 mö.kr. í lok tímabilsins samanborið við 451,2 ma.kr. í árslok 2010.
Innlán viðskiptavina námu 511,5 mö.kr. samanborið við 457,1 ma.kr. í árslok 2010.
Heildareignir námu 823,1 mö.kr. samanborið við 812,6 ma.kr. í árslok 2010.
Eigið fé bankans í lok tímabilsins var 120,7 ma.kr. en nam 105,9 mö.kr. í árslok 2010.
Í lok tímabilsins voru 1.168 stöðugildi hjá samstæðunni, samanborið við 1.124 á sama tímabili árið 2010. Aukningin stafar einkum af innkomu nýrra dótturfélaga í samstæðuna. Stöðugildi hjá móðurfélaginu, Arion banka, voru 870 samanborið við 965 á sama tímabili árið 2010.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Afkoma bankans á þriðja ársfjórðungi er viðunandi. Ekki má líta framhjá því að hagnaðurinn á fyrstu 9 mánuðum ársins er að hluta til kominn vegna endurmats á lánasafni bankans á fyrirtækjasviði. Mikill árangur hefur náðst í úrlausnarmálum viðskiptavina bankans og mun þeirri vinnu að mestu ljúka á þessu ári. Jákvæð teikn eru í ytra umhverfi. Það er okkur hjá Arion banka mikilvægt að vera virkir þátttakendur í þeirri uppbyggingu sem nú á sér stað í efnahagslífi landsins. Fyrirhuguð skráning Haga í Kauphöll nú í desember er dæmi um það. Miklu skiptir að tekin séu rétt og ábyrg skref þegar við byggjum upp virkan verðbréfamarkað að nýju.“
Fjölbreytt fjármálaþjónusta
Arion banki hefur verið leiðandi er kemur að nýjungum á íbúðalánamarkaði en fyrr á árinu kynnti bankinn nýja fjármögnunarkosti til fasteignakaupa. Um er að ræða verðtryggð lán sem bera hagstæða vexti og óverðtryggð lán sem bera fasta vexti til fimm ára í senn. Í nóvember kynnti bankinn svo blönduð íbúðalán þar sem hægt er að blanda saman óverðtryggðu og verðtryggðu láni í þeim hlutföllum sem best henta hverjum og einum. Þannig geta viðskiptavinir stillt af greiðslubyrði íbúðalána sinna eftir því sem hentar þeirra aðstæðum.
Arion banki bauð í lok september nýja þjónustu á fyrirtækjasviði bankans, Faktoring. Starfsemi Faktoring snýst um að fjármagna viðskiptakröfur og við það fléttast viðbótarþjónusta s.s. innheima og áhættustýring viðskiptakrafna. Veigamikill þáttur í starfseminni er miðlun greiðslufallstrygginga.
Meniga heimilisbókhald Arion banka varð aðgengilegt í netbankanum í ágúst. Meniga er vefur, sérhannaður til að aðstoða notendur við að stjórna heimilisfjármálunum, setja sér markmið og nýta peningana sína sem best. Arion banki bauð viðskiptavinum sínum á byrjendanámskeið í notkun Meniga og voru viðtökurnar við námskeiðinu framar vonum. Alls voru um 20 námskeið haldin en ný námskeið verða í boði á nýju ári.
Sala fyrirtækja
Arion banki tilkynnti nýlega að Eignabjarg, dótturfélag bankans, hyggðist selja 20 - 30% hlut í Högum hf. í almennu útboði. Stefnt er að því að viðskipti með hluti í félaginu hefjist í Kauphöllinni nú í desember, í kjölfar almenns hlutafjárútboðs.
Arion banki seldi Framtakssjóði Íslands 39% hlut í N1 í lok september.
Í byrjun október var undirritaður samningur um sölu á B.M. Vallá ehf. frá Eignabjargi ehf., dótturfélagi Arion banka. Salan fór fram eftir að auglýst hafði verið eftir tilboðum frá áhugasömum fjárfestum.
Arion banki bauð auk þess AFL sparisjóð og Sparisjóð Ólafsfjarðar til sölu í byrjun október, en áhugi var lítill.
Eignastýring
Arion banki er stærsta eignastýringarfyrirtæki landsins. Eignir í stýringu jukust um tæpa 15 ma.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins og voru alls 632,6 ma.kr. undir lok tímabilsins.
Eignastýring Arion banka skrifaði nýlega undir eignastýringar- og rekstrarsamning við Eftirlaunasjóð FÍA og er um að ræða einn stærsta eignastýringarsamning sem gerður hefur verið á landinu.
Arion banki og dótturfélag hans Stefnir hf. eru virkir þátttakendur í uppbyggingu á íslensku atvinnulífi. Á þriðja ársfjórðungi keypti SRE I, félag í rekstri Stefnis hf., fasteignina við Þingvallastræti 23 á Akureyri sem hýsir Icelandair Hótel Akureyri.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn var í byrjun nóvember valinn besti lífeyrissjóður á Íslandi þriðja árið í röð af fagtímaritinu Investment Pension Europe (IPE).
Úrlausnarmálum senn lokið
Arion banki hefur starfað í samræmi við samkomulag sem gert var á milli stjórnvalda og fjármálafyrirtækja í desember á síðasta ári. Samkomulagið kvað á um samræmdar aðgerðir til handa heimilum í greiðsluvanda. Þar var meðal annars kveðið á um framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar og hinnar svokölluðu 110% leiðar.
Arion banki hefur afgreitt yfir 95% umsókna um sértæka skuldaaðlögun og samþykkt yfir 97% af umsóknum í 110% leiðina, en alls hafa rúmlega fimm þúsund heimili fengið skuldaaðlögun. Fyrir liggja ákvarðanir um niðurfærslur lána sem samtals nema um 38 milljörðum króna, en gert er ráð fyrir að afgreiðslu eftirstandandi mála ljúki á næstunni. Arion banki hefur nýtt það svigrúm sem til staðar var gagnvart einstaklingum, en bankinn fékk 21% afslátt af íbúðalánasafninu við yfirfærsluna á lánasafninu. Svigrúmið sem bankinn fékk nam 35 milljörðum króna, það er því búið að nýta allt það svigrúm sem gefið var og ríflega það.
Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja langt komin
Úrvinnsla skuldamála fyrirtækja er langt komin en í byrjun nóvember var um 83% mála þegar lokið. Af um 950 fyrirtækjum sem eru í viðskiptum við bankann og þurfa á fjárhagslegri endurskipulagningu að halda er vinnu við tæplega 800 lokið.
Endurútreikningi erlendra einstaklings- og fyrirtækjalána í kjölfar Mótormax dóms mun ljúka á árinu, en þegar er búið að birta 75% endurútreiknings.
Nýsköpun
Arion banki valdi í haust búnað frá nýsköpunarfyrirtækinu ReMake Electric til að stjórna orkunotkun í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni og í útibúi bankans á Höfða. Um er að ræða orkustjórnunarkerfi, byggt á íslensku hugviti, sem nýsköpunarfyrirtækið hefur þróað.
Arion banki og Sprotaþing Íslands skrifuðu nýlega undir þriggja ára samstarfssamning og er bankinn nú aðalbakhjarl Sprotaþingsins. Samstarfið felur meðal annars í sér að Arion banki heldur Sprotaþing Íslands auk örfjárfestaþinga sem haldin eru nokkrum sinnum á ári hverju.
Samfélagsmál
Arion banki var líkt og undanfarin ár aðalstyrktaraðili Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélagsins sem stóð yfir allan októbermánuð. Í tilefni af Bleika deginum þann 7. október sl. gaf starfsmannafélag Arion banka 500 krónur fyrir hverja konu sem er í félaginu til Krabbameinsfélagsins, alls 321.000 krónur.
Arion banki skrifaði í síðustu viku undir samstarfssamning við HSÍ og verður Arion banki einn af aðalstyrktaraðilum kvennalandsliðsins í handbolta. Arion banki hefur um árabil verðir einn helsti styrktaraðili karlalandsliðsins í handbolta og hefur samstarfið við HSÍ verið afar farsælt.
Arion banki stóð fyrir lestrarviku í byrjun nóvember en markmið hennar var að hvetja krakka á öllum aldri til að vera duglegir að lesa sér til skemmtunar. Um tvö þúsund krakkar skráðu sig til leiks og lásu um 760 þúsund blaðsíður.
Arion banki veitti auk þess 30 námsmönnum bókastyrk að upphæð 30.000 krónur hverjum. Um var að ræða námsmenn á framhaldsskóla- og háskólastigi. Styrkurinn er árlegur og verður næst veittur í október 2012.
Arion banki er bakhjarl innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar, en auk fjárframlags stendur bankinn straum af kostnaði við framleiðslu, færslur og aðra bankastarfsemi tengda inneignarkortum í matvöruverslanir sem skjólstæðingar Hjálparstarfsins fá. Í byrjun nóvember fékk Hjálparstarfið Evrópuverðlaun fyrir innanlandsaðstoð sína.
Opinn skógur að Fossá í Hvalfirði var vígður í lok ágúst. Arion banki er bakhjarl Opinna skóga sem er verkefni skógræktarfélaga. Markmiðið með verkefninu Opinn skógur er að opna fjölmörg skógræktarsvæði í eigu og umsjón skógræktarfélaga og gera þau aðgengileg almenningi. Áhersla er lögð á að aðstaða og aðgengi sé til fyrirmyndar og að miðla upplýsingum og fræðslu um lífríki, náttúru og sögu.
Arion banki skrifaði undir samstarfssamning við Hörpu og verður einn helsti bakhjarl þeirra viðburða sem Harpa mun standa fyrir.