07.05.2010

Af­koma Arion banka ár­ið 2009

Afkoma Arion banka á árinu 2009 nam 12,8 milljörðum króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár var 16,7%. Þrátt fyrir erfitt efnahagsástand er enduruppbygging Arion banka vel á veg komin og byggist á sterkum efnahag, góðri lausafjárstöðu og traustri fjármögnun.

Með yfirtöku Kaupskila á 87% hlut í Arion banka þann 8. janúar sl. styrktist eiginfjárstaða bankans enn frekar þar sem Kaupskil lagði bankanum til nýtt eigið fé ásamt því að ríkið veitti bankanum víkjandi lán. Við þetta fór eiginfjárhlutfall bankans úr 13,7% í lok árs 2009 í 16,4%. Fjármálaeftirlitið gerir nú kröfu um 16% eiginfjárhlutfall.

Helstu þættir uppgjörsins eru:

  • Hagnaður eftir skatta nam 12,8 ma.kr. á árinu 2009.

  • Tekjuskattur nam 2,5 ma.kr., þar af er áætlað að til greiðslu komi um 1 ma.kr. á árinu 2010.

  • Enginn arður verður greiddur til hluthafa bankans árið 2010 vegna hagnaðar á árinu 2009.

  • Rekstrartekjur námu alls 49,6 ma.kr. á árinu.

  • Hreinar vaxtatekjur námu 12,1 ma.kr.

  • Hreinar þóknunartekjur námu 5,9 ma.kr.

  • Nettóbreyting á lánasafni nam 10,3 ma.kr. vegna virðisaukningar þar sem líkur eru á betri endurheimtum af lánum og vegna virðisrýrnunar í þeim tilvikum sem væntar endurheimtur eru minni. Þá eru 10,6 ma.kr. gjöld tilkomin vegna samningsbundinnar lækkunar á kröfu bankans á Kaupþing vegna hlutdeildar Kaupþings í virðisaukningu hluta þeirra eigna sem færðar voru frá Kaupþingi til Arion banka haustið 2008.

  • Tekjur frá dótturfélögum sem bankinn hefur tímabundið tekið yfir eru 17,8 ma.kr. en þar á móti koma laun og rekstrarkostnaður þessara félaga samtals að fjárhæð 18,0 ma.kr.

  • Gengishagnaður nam samtals 10,3 ma.kr. sem skýrist einkum af 7,6% veikingu íslensku krónunnar gagnvart gengisvísitölu Seðlabanka Íslands á árinu 2009 og neikvæðum gjaldeyrisjöfnuði bankans.

  • Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna og skulda var 1,9% á árinu 2009.

  • Arðsemi eigin fjár var 16,7%.

  • Kostnaðarhlutfall bankans var 57,5%.

  • Í árslok 2009 voru 1.096 stöðugildi hjá bankanum.

  • Heildareignir námu 757,3 ma.kr. í lok árs 2009 samanborið við 641,2 ma.kr. í lok árs 2008. Helstu breytingar á eignum bankans má rekja til endurgjalds vegna yfirtöku skuldbindinga vegna innlána SPRON og eigna og skulda Sparisjóðs Mýrasýslu á fyrri hluta ársins 2009 ásamt veikingu íslensku krónunnar.

  • Heildarútlán til lánastofnana og viðskiptavina námu 396,2 ma. kr. en innlán voru 609,1 ma.kr. í árslok 2009.

  • Þann 8. janúar 2010 þegar Kaupskil tók yfir 87% hlutafjár Arion banka jókst eigið fé bankans úr 90,0 ma.kr. í 93,9 ma.kr. Á sama tíma jukust heildareignir bankans um 80,2 ma.kr. í 837,6 ma.kr. Lánabók bankans óx um 112,8 ma.kr. en skuldabréfaeign lækkaði um 32,6 ma.kr. þar sem ríkið fékk 87% af hlut sínum greiddan til baka.

Helstu atburðir ársins 2009:

  • Á árinu 2009 var unnið að gerð stofnefnahags og rammasamningur gerður á milli ríkisins og skilanefndar Kaupþings um framtíðareignarhald og fjármögnun bankans 17. júlí og endanlegir samningar undirritaðir 3. september. Skilanefnd Kaupþings kynnti kaup á 87% hlut í bankanum 1. desember sl.

  • Mikil áhersla var lögð á úrvinnslu lánamála heimila sem hafa orðið illa úti í efnahagshruninu. Tæplega tvö þúsund einstaklingar og fjölskyldur hafa nýtt sér sértækar lausnir Arion banka þá fimm mánuði sem þær hafa staðið til boða. Ungt fólk með sína fyrstu íbúð er þar í miklum meirihluta. Samtals hafa um 14.000 viðskiptavinir Arion banka nýtt sér lausnir bankans eða þau opinberu úrræði sem eru í boði.

  • Eitt af umfangsmestu verkefnum bankans á árinu 2009 var úrlausn lánamála fyrirtækja. Sérstök deild var sett á laggirnar innan bankans til að vinna að þessum úrlausnarefnum með markvissum og samræmdum hætti.

  • Bankinn tók upp nafnið Arion banki 20. nóvember.

  • Bankinn tók yfir skuldbindingar vegna innlána SPRON og rekstur Sparisjóðs Mýrasýslu á árinu.

  • Bankinn hefur hagrætt í útibúaneti sínu með góðum árangri. Það hefur verið gert með því að sameina útibú og mynda stærri og öflugri einingar sem geta veitt enn víðtækari þjónustu. Með þessum aðgerðum er útibúanet bankans það hagkvæmasta hér á landi.

Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka segir um uppgjörið: „Ársreikningurinn sýnir að bankinn er vel í stakk búinn að takast á við þær áskoranir sem eru framundan í efnahagslífi landsins. Áhersla hefur verið lögð á að styrkja verkferla, verklagsreglur og innra eftirlit. Starfsfólk hefur lagt hart að sér við að leysa mörg vandasöm og flókin verkefni og það er ljóst að það er erfitt ár að baki bæði fyrir starfsfólk og viðskiptavini bankans. Afkoma bankans er ásættanleg og eiginfjárhlutfall samræmist kröfu Fjármálaeftirlitsins.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira