21.11.2009

Af­koma Nýja Kaupþings banka (nú Arion banka) frá 22. októ­ber til árs­loka 2008

Hagnaður eftir skatta 4,8 milljarða króna

  • Hagnaður eftir skatta nam 4,8 ma.kr. á tímabilinu 22. október til 31. desember 2008.

  • Hreinar vaxtatekjur námu 4,2 ma.kr. og hreinar þóknunartekjur 1,3 ma.kr.

  • Rekstrartekjur voru alls 31,4 ma.kr. á tímabilinu, þar af 31,1 ma.kr. gengishagnaður sem skýrist af 6,8% veikingu íslensku krónunnar gagnvart gengisvísitölu Seðlabanka Íslands og neikvæðum gjaldeyrisjöfnuði bankans. Á móti gengishagnaði kemur aukin virðisrýrnun útlána í erlendri mynt vegna skertrar greiðslugetu þeirra lánþega sem hafa eingöngu tekjur í íslenskum krónum.

  • Virðisrýrnun útlána og krafna á tímabilinu nam 19,7 ma.kr.

  • Gjaldfærður kostnaður bankans vegna skuldbindingar við Tryggingarsjóð innstæðueiganda og fjárfesta nam 2,97 ma.kr.

  • Tekjuskattur nam 766 m. kr., þar af koma til greiðslu tæpar 600 m. kr. á árinu 2010.

  • Eiginfjárhlutfall bankans (CAD hlutfall) nemur 9,5% í árslok 2008 en að teknu tilliti til innbyggðra gengisvarna er hlutfallið 10,8% Lögbundið lágmark er 8%.

  • Arðsemi eigin fjár var 39,4% miðað við heilt ár.

  • Hagnaður á hlut var 0,38 krónur.

  • Kostnaðarhlutfall bankans var 19,5%. Að teknu tilliti til gengishagnaðar og óreglulegra liða í kostnaði er kostnaðarhlutfallið 49,5%.

  • Heildareignir voru 641,2 ma.kr. í lok ársins.

  • Eigið fé nam 76,9 ma.kr. í lok árs 2008.

Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka:
„Við fögnum því að endurskoðuðu uppgjöri Nýja Kaupþings banka hf. (nú Arion banka) fyrir árið 2008 er lokið. Uppgjörið staðfestir að bankinn hefur fest sig í sessi sem öflugt fjármálafyrirtæki sem er vel í stakk búið til að þjónusta íslensk heimili og fyrirtæki. Þá var styrkum stoðum skotið undir hinn nýja banka með samningnum milli íslenska ríkisins og skilanefndar Kaupþings í september sl. þar sem fjármögnun og lausafjárstaða hans var tryggð.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira