17.04.2015

AFL spari­sjóður í sölu­ferli

Ákveðið hefur verið að AFL Sparisjóður verði settur í söluferli. Ákvörðun um söluferli er tekin að höfðu samráði við eftirlitsaðila. Sparisjóðurinn hefur um nokkurra mánaða skeið ekki uppfyllt að fullu viðmið Fjármálaeftirlitsins um eiginfjárgrunn og hefur Arion banki unnið að málefnum sjóðsins í samstarfi við stjórn hans, Fjármálaeftirlitið og Samkeppniseftirlitið.

Á fundi stofnfjárhafa í AFLi sparisjóði sem fram fór fyrr í dag var kjörin ný stjórn sparisjóðsins auk þess sem breytt var samþykktum þannig að eftirleiðis hefur hver stofnfjárhafi atkvæðavægi á fundum stofnfjárhafa AFLs í réttu hlutfalli við eignarhlut í sjóðnum. Áður fór enginn stofnfjárhafi með atkvæðavægi umfram 5% sem skapaði ákveðna óvissu um stjórn og framtíð sjóðsins.

Arion banki eignaðist 95% í AFLi sparisjóði við yfirtökuna á Sparisjóði Mýrarsýslu árið 2009, en eignarhlutur bankans er í dag 99,3%. Frá 2009 hefur Arion banki lagt AFLi til umtalsvert eigið fé en sparisjóðurinn kom laskaður út úr fjármálahruninu.

Það er mikilvægt fyrir viðskiptavini sjóðsins, starfsfólk hans og eigendur að eyða þeirri óvissu sem ríkt hefur um sjóðinn og framtíð hans. Stefnt er að niðurstaða söluferlisins liggi fyrir eins fljótt og auðið er.

Nýja stjórn AFLs sparisjóðs skipa Stefán Pétursson, sem er formaður stjórnar, Guðmundur Thorlacius, Jónas Björnsson, Laufey Gunnarsdóttir og Rakel Óttarsdóttir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira