23.03.2009
Áframhaldandi frestun innlausnar
Þar sem tímabundin stöðvun viðskipta með hluti í Spron er enn í gildi, mun frestun innlausnar hlutdeildarskírteina í neðangreindum sjóði gilda áfram.
Áfram verður tekið við pöntunum viðskiptavina, en þær verða ekki afgreiddar fyrr en Fjármálaeftirlitið ákveður að viðskipti hefjist að nýju með hluti félagsins.
ICEQ verðbréfasjóður
Frestun innlausnar er gerð á grundvelli 2. mgr. 27. gr. laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.
Þá hefur stjórn Kaupthing Investment Funds ákveðið áframhaldandi frestun innlausnar með hlutdeildarskírteini Kaupthing Investment Funds – Icelandic Equity.
23. mars 2009