02.01.2009
Áframhaldandi frestun innlausnar
Þar sem tímabundin stöðvun viðskipta með alla fjármálagerninga útgefna af Spron er enn í gildi, mun frestun innlausnar hlutdeildarskírteina í eftirfarandi sjóðum gilda áfram.
Áfram verður tekið við pöntunum viðskiptavina, en þær verða ekki afgreiddar fyrr en Fjármálaeftirlitið ákveður að viðskipti hefjist að nýju með fjármálagerninga félagsins.
ICEQ verðbréfasjóður
Kaupþing Verðbréfaval 1-5
Frestun innlausnar ofangreindra sjóða byggist á grundvelli 2. mgr. 27. gr. og 2. mgr. 53. gr. laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.
Þá hefur stjórn Kaupthing Investment Funds ákveðið áframhaldandi frestun innlausnar með hlutdeildarskírteini Kaupthing Investment Funds – Icelandic Equity.
Stjórn Kaupthing Manager Selection hefur ákveðið áframhaldandi frestun innlausnar með hlutdeildarskírteini KMS BRIC, KMS Global Equity, KMS Europe og KMS Emerging Markets.
2. janúar 2009