17.10.2008
Áframhaldandi frestun innlausnar
Þar sem tímabundin stöðvun viðskipta með alla fjármálagerninga útgefnum af Glitni, Kaupþingi, Landsbanka, Exista, Straumi og Spron er enn í gildi, mun frestun innlausnar hlutdeildarskírteina í eftirfarandi sjóðum gilda áfram.
Áfram verður tekið við pöntunum viðskiptavina, en þær verða ekki afgreiddar fyrr en Fjármálaeftirlitið ákveður að viðskipti hefjist að nýju með fjármálagerninga félaganna.
Kaupþing Peningamarkaðssjóður
Kaupþing Skammtímasjóður
Kaupþing Hávaxtasjóður
Kaupthing Liquidity Fund EUR
Kaupthing Liquidity Fund USD
Kaupthing Liquidity Fund GBP
Kaupþing Heildarvísitölusjóður
Kaupþing Úrvalsvísitölusjóður
Kaupþing ÍS-15
Kaupþing ÍS-5 (fagfjárfestasjóður)
ICEQ verðbréfasjóður
Kaupþing Skuldabréf stutt
Kaupþing Skuldabréf millilöng
Kaupþing Skuldabréf löng
Kaupþing Erlend Skuldabréf
Kaupthing Scandinavian Fund
Kaupthing Green Growth
Kaupþing Erlend Hlutabréf
Kaupþing Verðbréfaval 1-5
Kaupþing Eignastýringarsjóður
Kaupþing Samval
Kjarabréf
Frestun innlausnar ofangreindra sjóða byggist á grundvelli 2. mgr. 27. gr. og 2. mgr. 53. gr. laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.
Þá hefur stjórn Kaupthing Investment Funds ákveðið áframhaldandi frestun innlausnar með hlutdeildarskírteini Kaupthing Investment Funds – Icelandic Equity.
Stjórn Kaupthing Manager Selection ákveðið frestun innlausnar með hlutdeildarskírteini KMS BRIC, KMS Global Equity, KMS Europe og KMS Emerging Markets.
Stjórn Kaupthing Fund ákveðið að fresta innlausn hlutdeildarskírteina í Kaupthing Fund Global Value – ISK Class.
17. október 2008