27.11.2008
Áframhaldandi frestun innlausnar
Þar sem tímabundin stöðvun viðskipta með alla fjármálagerninga útgefna af Exista, Straumi og Spron er enn í gildi, mun frestun innlausnar hlutdeildarskírteina í eftirfarandi sjóðum gilda áfram.
Áfram verður tekið við pöntunum viðskiptavina, en þær verða ekki afgreiddar fyrr en Fjármálaeftirlitið ákveður að viðskipti hefjist að nýju með fjármálagerninga félaganna.
Kaupþing Hávaxtasjóður
Kaupthing Liquidity Fund EUR
Kaupthing Liquidity Fund USD
Kaupthing Liquidity Fund GBP
Kaupþing Heildarvísitölusjóður
Kaupþing Úrvalsvísitölusjóður
Kaupþing ÍS-15
Kaupþing ÍS-5 (fagfjárfestasjóður)
ICEQ verðbréfasjóður
Kaupþing Verðbréfaval 1-5
Þar sem viðskipti með gjaldeyri, framvirka gjaldeyrissamninga og gjaldeyrisskiptasamninga eru ekki með eðlilegum hætti mun frestun innlausnar hlutdeildarskírteina í Kaupþing Erlend Skuldabréf gilda áfram.
Frestun innlausnar ofangreindra sjóða byggist á grundvelli 2. mgr. 27. gr. og 2. mgr. 53. gr. laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.
Þá hefur stjórn Kaupthing Investment Funds ákveðið áframhaldandi frestun innlausnar með hlutdeildarskírteini Kaupthing Investment Funds – Icelandic Equity.
Stjórn Kaupthing Manager Selection hefur ákveðið áframhaldandi frestun innlausnar með hlutdeildarskírteini KMS BRIC, KMS Global Equity, KMS Europe og KMS Emerging Markets.
27. nóvember 2008