21.05.2010

Áfram­hald­andi starf­semi BM Vallár tryggð

Skiptastjóri þrotabús BM Vallár hefur gert samkomulag við Arion banka um að bankinn taki yfir hluta af steypustarfsemi BM Vallár en fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota fyrir skömmu. Með kaupunum er áframhaldandi starfsemi fyrirtækisins tryggð. Fjöldi starfsmanna heldur störfum sínum og óvissu um stórframkvæmdir er eytt. Þessar framkvæmdir eru t.d. við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu og Bolungarvíkur- og Héðinsfjarðargöng, en fjöldi starfa tengist þessum verkefnum. Hjá BM Vallá störfuðu 200 manns og mikilvægt var að leita allra leiða til þess að starfsemi félagsins héldi áfram.

Starfsemi BM Vallár á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi er nú tímabundið í eigu Arion banka, auk færanlegrar steypustöðvar. Bankinn stefnir að því að selja fyrirtækið sem allra fyrst.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira