12.08.2009

Áfrýj­unar­nefnd neyt­enda­mála stað­festir lög­brot Alli­anz

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur með úrskurði sínum nr. 4/2009 staðfest ákvörðun Neytendastofu nr. 1/2009 þess efnis að Allianz á Íslandi hf. hafi brotið gegn lögum um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og markaðssetningu nr. 57/2005 með villandi samanburði á raunávöxtun viðbótarlífeyrissparnaðar hjá Allianz og Kaupþingi banka hf.

Áfrýjunarnefndin féllst á rökstuðning Neytendastofu um að samanburður og framsetning á meðalávöxtun í dreifibréfi Allianz hafi verið ófullnægjandi og villandi þar sem ekki var gerður greinarmunur á þeim fjárfestingarleiðum sem almennum viðsemjendum Kaupþings er gefinn kostur á.

Auk þess hafi Allianz ekki sýnt fram á að ávöxtunartölur sem notaðar voru fram til stofnunar Vista sjóða Kaupþings hafi verið réttar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira