30.07.2009
Áfrýjunarnefnd neytendamála staðfestir úrskurð Neytendastofu
Neytendastofa úrskurðaði í febrúar 2009 að Allianz á Íslandi hf. hafi brotið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu með villandi samanburði á raunávöxtun viðbótarlífeyrissparnaðar hjá Allianz og Kaupþingi. Áfrýjunarnefnd neytendamála staðfesti þessa ákvörðun Neytendastofu þann 13. júlí 2009.
Um er að ræða dreifibréf, sem Allianz sendi frá sér, þar sem borin var saman raunávöxtun viðbótarlífeyrissparnaðar sl. átta ár hjá Allianz og séreignarsjóðum Vista og Lífeyrisauka, sem reknir eru af Nýja Kaupþingi.
Úrskurð áfrýjunarnefndar neytendamála í heild má lesa hér: