26.04.2013
Áhættuskýrsla Arion banka komin út
Áhættustýringarsvið Arion banka hefur nú gefið út Áhættuskýrslu bankans árið 2012 en markmiðið með skýrslunni er tvíþætt, annars vegar að veita upplýsingar um áhættu- og eiginfjárstýringu bankans og hins vegar að uppfylla lögbundnar kröfur um upplýsingagjöf skv. tilskipun Evrópusambandsins um eiginfjárkröfur (Directive 2006/48 & 2006/49). Í skýrslunni er meðal annars fjallað um helstu áhættuþætti bankans og stýringu þeirra, samsetningu eigin fjár, eiginfjárkröfur og starfskjarastefnu bankans.
Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni má nefna að í lok árs 2012 var eiginfjárgrunnur bankans 159.694 milljónir króna (24,3%) en þar af var eiginfjárþáttur A 125.474 milljónir króna (19,1%). Þá minnkaði samþjöppunaráhætta vegna einstakra lántaka á árinu 2012, en hún var 60% að frádregnum tryggingum samanborið við 87% árið 2011.
Skýrsluna má finna á vef bankans en hún er eingöngu gefin út á ensku í ár undir heitinu Pillar 3 Risk Disclosures. Héðan í frá verður hún gefin út árlega og ábyrgðarmaður hennar er framkvæmdastjóri áhættustýringarsviðs, Gísli Óttarsson.