09.03.2009
Áhrif yfirtöku Straums á sjóði
Þar sem Fjármálaeftirlitið hefur gripið inn í rekstur Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka hf. hefur virði hluta í Straumi í eigu neðangreindra sjóða verið fært alfarið niður.
Kaupþing Heildarvísitölusjóður
Kaupþing ÍS-15
ICEQ
Aðrir sjóðir Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. eiga ekki fjármálagerninga útgefna af Straumi.
Viðskiptavinir geta eftir sem áður átt viðskipti með hlutdeildarskírteini Kaupþings Heildarvísitölusjóðs og Kaupþings ÍS-15.
Innlausn hlutdeildarskírteina ICEQ verður áfram frestað þar sem tímabundin stöðvun viðskipta með hluti í Spron er enn í gildi.
9. mars 2009