29.10.2010
Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins varðandi yfirtöku Arion banka á Þyrpingu hf.
Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins varðandi yfirtöku Arion banka hf. á Þyrpingu hf. hefur verið birt á vef eftirlitsins. Samkeppniseftirlitið setur yfirtökunni ítarleg skilyrði sem miða að því að draga úr hugsanlegri samkeppnisröskun sem stafað getur af eignarhaldi bankans á fyrirtækinu.
Í skilyrðunum eru ítarleg ákvæði sem leggja þá skyldu á Arion banka að taka upp viðvarandi og öflugt innra eftirlit til þess að uppfylla skilyrði eftirlitsins. Stjórn Arion banka hefur falið innri endurskoðun bankans að fylgjast með því að skilyrðin verði uppfyllt. Mun innri endurskoðun gefa Samkeppniseftirlitinu skýrslu um starf sitt með reglubundnum hætti.
Nánari upplýsingar um úrskurðinn er að finna á vef Samkeppniseftirlitsins.