17.02.2009

Alli­anz braut lög með dreifi­bréfi um ávöxt­un lífeyris­sparnaðar Alli­anz, Lífeyris­auka og Vista

Neytendastofa hefur úrskurðað að Allianz á Íslandi hf. hafi brotið gegn ákvæðum laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins með dreifibréfi þar sem borin er saman raunávöxtun viðbótalífeyrissparnaðar sl. átta ár hjá Allianz og séreignarsjóðunum Vista og Lífeyrisauka, sem eru reknir af Nýja Kaupþingi.

Að mati Neytendastofu er samanburðinn villandi og því brot á ákvæðum laganna þar sem tekin var saman ein meðalávöxtun fyrir alla sjóði Kaupþings Vista annars vegar og alla sjóði Kaupþings Lífeyrisauka hins vegar. Þá hafi útreikningar Allianz ekki verið réttir, segir á vef stofnunarinnar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira