28.12.2010

Alli­anz braut lög með vill­andi upplýsingum á vef­síðu félagsins

Neytendastofa hefur úrskurðað að Allianz hafi brotið gegn ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu með því að birta villandi upplýsingar á vefsíðu félagsins.

Arion banki kvartaði til Neytendastofu yfir upplýsingum á vefsíðu Allianz um viðbótarlífeyrissparnað. Neytendastofa féllst á athugasemdir Arion banka og taldi Allianz hafa brotið gegn ákvæðum laga nr. 57/2005, um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, með því að:

  • Greina ekki frá því með nægilega skýrum hætti að fullyrðing um tryggða lágmarksávöxtun ætti við um ávöxtun sparnaðar hjá sjóðnum í evrum

  • Greina ekki frá því með nægilega skýrum hætti að upplýsingar um litlar sveiflur í ávöxtun ættu við um ávöxtun sparnaðar hjá sjóðnum í evrum

  • Greina ekki frá því með skýrum hætti að ástæðu þess að ávöxtun sjóðsins í íslenskum krónum árið 2008 mætti rekja til hruns íslensku krónunnar og mikillar verðbólgu á Íslandi það ár.

Auk þess braut félagið gegn sömu lögum með því að geta ekki sannað fullyrðingu sína um að Allianz byði öruggustu ávöxtun sem um geti hér á landi.

  • Sjá frétt Neytendastofu hér

  • Ákvörðun nr. 52/2010 má lesa í heild sinni hér

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira