29.08.2013

All­ir vel­komnir á upp­skeru­há­tíð Startup Reykja­vík

Næstkomandi laugardag verður opið hús í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, frá kl 13 til 17 þar sem áhugasömum er boðið að kíkja í heimsókn og kynna sér Startup Reykjavík og þau verkefni sem tóku þátt í Startup Reykjavík ár.

Áhugaverðar staðreyndir um Startup Reykjavík
  • 386 hugmyndir hafa sótt um inngöngu

  • Ríflega 700 einstaklingar stóðu bakvið innsendar hugmyndir

  • 20 frumkvöðlateymi hafa verið valin og tekið þátt

  • 60 manns starfa við þessi 20 teymi

  • 60 milljónir er heildarfjárfesting Arion banka í þessum teymum

  • Ríflega 140 milljónir króna hafa þessi teymi fengið í styrki

  • Yfir 80 mentorar hafa leiðbeint teymunum, innlendir sem erlendir

Hvað er Startup Reykjavík?

Nýsköpunarsmiðjan Startup Reykjavík var fyrst haldin sumarið 2012 en bakvið hana standa Arion banki ásamt Klak Innovit. Tíu frumkvöðlateymi voru valin úr hópi hátt í tvö hundruð umsókna. Teymin fengu aðgang að sameiginlegri skrifstofuaðstöðu þar sem þau unnu sleitulaust í tíu vikur að hugmynd sinni. Þau nutu jafnframt leiðsagnar yfir 50 svokallaðra mentora sem allir bjuggu yfir víðtækri reynslu úr háskóla- eða atvinnulífinu. Strax við upphaf prógrammsins reið Arion banki á vaðið og fjárfesti í teymunum tíu en um var að ræða 2 milljóna króna fjárfestingu gegn 6% eignahlut. Í lok þessara tíu vikna var haldinn svokallaður fjárfestadagur þar sem frumkvöðlarnir í Startup Reykjavík og fjárfestar víða að úr atvinnulífinu, innlendir sem erlendir, voru leiddir saman. Leikurinn var svo endurtekinn í sumar og verður Startup Reykjavík aftur haldið á næsta ári enda er hér um að ræða nýjung í íslensku frumkvöðlalífi sem er mikilvæg viðbót við frumkvöðlaumhverfið á Íslandi. Fyrir tilstuðlan Startup Reykjavík hafa 20 sprotafyrirtæki fengið fjármögnun í formi hlutafjár.

Frumkvöðlarnir í Startup Reykjavík 2013

Frumkvöðlateymin tíu sem valin voru til þátttöku í Startup Reykjavík í ár eru af ýmsum toga og má þar nefna viskýframleiðanda, fatahönnuði, tæknifyrirtæki og jurtalyfjaframleiðanda. Sum fyrirtækin reka sig sjálf í dag með sölu á eigin vöru en önnur eru enn á vöruþróunarstigi. Nú þegar hefur tveimur teymum verið boðið til Moskvu og San Fransisco til að kynna sínar hugmyndir en frumkvöðlateymin úr Startup Reykjavík 2012 hafa farið víða um heim að kynna sínar hugmyndir.

Frumkvöðlateymin verða til skrafs og ráðagerða í kynningarbásum sínum á opnu húsi í Arion banka, Borgartúni 19, á laugardaginn.

„Gróskan meðal íslensks hugvitsfólks er mikil. Við sjáum það ekki bara á fjölda þeirra umsókna sem okkur berast í Startup Reykjavík, heldur líka á fyrirtækjunum sjálfum sem þar taka þátt og öllum þeim gestum sem sækja opna viðburði á vegum Startup Reykjavík. Íslenskt hagkerfi þarfnast styrkari stoða og beinn og raunverulegur stuðningur við sprotafyrirtæki er liður í því að auka flóru fyrirtækja. Markmiðið með Startup Reykjavík er að búa til lífvænleg fyrirtæki sem eru fjárfestingarhæf. Það er von mín að fjárfestaumhverfið styrkist vel og dafni líkt og frumkvöðlaumhverfið hefur verið að gera síðustu misseri.“
Einar Gunnar Guðmundsson, Þróunarsviði Arion banka.

Dagskráin
  • Kl. 13:00 - Húsið opnar. Startup Reykjavík fyrirtæki með kynningarbása

  • Kl. 14:00-14:20 - Einar Gunnar Guðmundsson, frá Arion banka, og Kristján Freyr Kristjánsson, frá Klak Innovit, segja frá Startup Reykjavík og íslensku frumkvöðlaumhverfi

  • Kl. 14:20-15:00 - Fyrirtækjakynningar:

    • SAReye

    • GolfPro Assistant

    • YZ Creation

    • Activity Stream

    • Herberia

  • Kl. 15:00-15:30 - Hlé

  • Kl. 15:30-16:00 - Fyrirtækjakynningar:

    • Zalibuna

    • Silverberg Technologies

    • SeeMee

    • Snjohus Software

    • Þoran Distillery

  • Kl. 17:00 - Degi lýkur

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira