08.04.2015

Al­mennt hluta­fjárút­boð Eikar fasteigna­félags hf. 17.- 20. apríl

  • Arion banki býður 14,0% hlut í almennu útboði

  • Stærð útboðsins nemur að lágmarki 3,0 milljörðum króna miðað við lágmarksgengi 6,25 krónur á hlut

  • Eik fasteignafélag væntir þess að viðskipti með hlutabréf félagsins geti hafist á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland 29. apríl

Stjórn Eikar fasteignafélags hf. hefur ákveðið að óska eftir því við Nasdaq Iceland að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði. Eik fasteignafélag væntir þess að viðskipti geti hafist 29. apríl næstkomandi en áður en að því kemur mun fara fram almennt útboð á hlutabréfum í félaginu dagana 17.-20. apríl þar sem Arion banki hf. býður til sölu 14,0% eignarhlut í félaginu. Miðað við lágmarksverð útboðsins nemur heildarstærð þess 3.032 milljónum króna og svarar það til tæplega 21,7 milljarða króna markaðsvirðis alls hlutafjár í Eik fasteignafélagi. Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingarbankasviðs Arion banka hefur umsjón með útboðinu og því ferli að fá bréf félagsins tekin til viðskipta.

Áskriftarleiðir og verðlagning í útboðinu

Tvær tilboðsbækur verða í boði fyrir fjárfesta og nemur samanlögð stærð þeirra 485.125.578 hlutum. Í tilboðsbók A verður fjárfestum boðið að skrá sig fyrir kaupum að andvirði á bilinu frá 100 þúsund krónum og upp í 10 milljónir króna. Þar verður tekið við áskriftum á verðbilinu 6,25-6,95 krónur á hlut en eitt endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók A verður ákvarðað af seljanda í lok útboðs. Í tilboðsbók B verður tekið við áskriftum að andvirði yfir 10 milljónir króna. Þar verður lágmarksverð 6,25 krónur á hlut og ekkert hámarksverð tilgreint af seljanda en eitt endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók B verður ákvarðað af seljanda í lok útboðs sem verður jafnt eða hærra útboðsgengi A.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags:

„Það ánægjulegt að sjá skráningu félagsins verða að veruleika. Félagið hefur vaxið mikið undanfarin ár, reksturinn er traustur og félagið á gott safn fasteigna sem eru arðsamar og vel staðsettar fyrir leigutaka.“

Eik fasteignafélag hefur birt lýsingu hlutabréfa þar sem nálgast má helstu upplýsingar um félagið, hlutabréf þess og fyrirhugað útboð. Jafnframt hafa þeir birt fjárfestum kynningu á starfsemi sinni og útboðinu. Skjölin eru aðgengileg á vef félagsins og hér fyrir neðan.

Eik fasteignafélag Lýsing hlutabréfa
Eik fasteignafélag fjárfestakynning
Tilkynning um birtingu lýsingar Eikar fasteignafélags

Um félagið

Eik fasteignafélag er sérhæft fyrirtæki í eignarhaldi og útleigu á atvinnuhúsnæði. Frá stofnun hefur félagið vaxið með áherslu á fjárfestingar í helstu viðskiptakjörnum höfuðborgarinnar. Heildareignir Eik fasteignafélags í árslok 2014 námu 66,1 milljörðum króna. Fasteignir í eigu félagsins eru 106 talsins og um 273 þúsund fermetrum að stærð. Meðal fasteigna Eikar fasteignafélags eru Hafnarstræti 5-7, Borgartún 21, Borgartún 26, Álfheimar 74, Smáratorg 3 og Glerártorg. Stærstu leigutakar Eikar fasteignafélags eru Húsasmiðjan, Fasteignir ríkissjóðs, Síminn, Landsbankinn og VÍS.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira