11.03.2015

Al­mennt hluta­fjárút­boð í Eik fasteigna­félagi

Stjórn Eikar fasteignafélags hefur ákveðið að óska eftir að hlutabréf félagsins verði skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Í aðdraganda skráningarinnar mun fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafa umsjón með almennu útboði á hlutum í Eik fasteignafélagi hf. Stefnt er að því að útboðið verði haldið dagana 17. - 20. apríl 2015. Í útboðinu hyggst Arion banki hf. bjóða til sölu allt að 14% eignarhlut sinn í félaginu en frekari upplýsingar um stærð og fyrirkomulag útboðsins verða birtar í lýsingu félagsins. Með fyrirvara um staðfestingu Fjármálaeftirlitsins á lýsingu Eikar fasteignafélags verður hún birt á vefsvæði félagsins, www.eik.is/fjarfestar, í aðdraganda útboðsins.

Eik fasteignafélag sinnir rekstri og útleigu á atvinnuhúsnæði. Fjöldi eigna félagsins er yfir 100 og telja þær samtals um 273 þúsund fermetra. Virði fjárfestingaeigna félagsins er um 62 ma.kr. og heildarfjöldi leigutaka er yfir 400. Helstu eignir Eikar eru Borgartún 21 og 26, Nýi Glæsibær, Turninn í Kópavogi, Smáratorg og Austurstræti 5, 6, 7 og 17. Stærstu leigutakar eru Fasteignir ríkissjóðs, Húsasmiðjan, Landsbankinn, Rúmfatalagerinn, Skipti, Deloitte og VÍS.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira