26.11.2013
Almennt hlutafjárútboð í N1 dagana 6.-9. desember
Almennt útboð á 25% hlut í N1 hf. mun fara fram nú í desember, en um er að ræða hluti í eigu FSÍ (Framtakssjóðs Íslands) slhf. og Íslandsbanka hf. N1 hf. mun óska eftir því að öll hlutabréf í félaginu, samtals 1.000 milljón hlutir, verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöll Íslands) í kjölfarið.
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hefur umsjón með fyrirhugaðri skráningu félagsins í Kauphöll en Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka annast sölu og markaðssetningu á útboðinu.
Fjárfestum munu standa tvær áskriftarleiðir til boða: Í tilboðsbók A verða 10% í félaginu boðin á verðbilinu 13,5-15,3 krónur á hlut og geta áskriftir í þeim hluta verið að andvirði frá 100 þúsund krónum og allt að 10 milljónir króna. Í tilboðsbók B verður tekið við áskriftum að andvirði yfir 10 milljónir króna en hver áskrift getur að hámarki numið 15% í félaginu sem er heildarframboð í þessum hluta útboðsins. Lágmarksverð í B verður 15,3 krónur á hlut. Seljendur munu eftir lok áskriftartímabils ákvarða eitt endanlegt gengi á alla selda hluti í hvorri tilboðsbók og getur gengið orðið sitthvort í A og B. Ef umframeftirspurn verður í útboðinu er útboðið stækkanlegt í allt að 28% hluta.
Framtakssjóðurinn gerir að öðru óbreyttu ráð fyrir að eiga 20,90% í N1 eftir útboðið og Íslandsbanki 4,35-7,35% í félaginu.
Lýsing hefur verið birt og nálgast má hana hér og á www.n1.is/fjarfestatengsl. Innbundin eintök af lýsingunni má einnig nálgast hjá Arion banka í Borgartúni 19 og hjá N1 að Dalvegi 10-14 í Kópavogi frá 29. nóvember. Í lýsingunni er hægt að nálgast allar upplýsingar um fyrirkomulag útboðsins. Tekið verður við áskriftum á www.islandsbanki.is frá klukkan 10:00 föstudaginn 6. desember til klukkan 16:00 mánudaginn 9. desember næstkomandi.
Fyrirvari og lýsing