23.11.2011
Almennt útboð: 20-30% hlutafjár í Högum til sölu á 11-13,5 kr./hlut
Fjárfestingabankasvið Arion banka mun á næstu dögum kynna almennt útboð á hlutabréfum í Högum fyrir áhugasömum fjárfestum. Í útboðinu mun Eignabjarg, dótturfélag Arion banka, bjóða almenningi og fagfjárfestum að kaupa 20-30% af útgefnum hlutum í verslunarfyrirtækinu Högum hf. Óskað verður eftir áskriftum á verðbilinu 11-13,5 krónur á hlut.
Markmið um dreift eignarhald
Eignabjarg hefur þegar selt 44% hlut til dreifðs hóps lífeyrissjóða og annarra fagfjárfesta en mun halda eftir um 20-30% eignarhlut þar til á næsta ári, fram yfir fyrirhugaða skráningu Haga í Kauphöll. Markmiðið er að útboðið geri Högum kleift að uppfylla skilyrði NASDAQ OMX Iceland um dreifingu hlutafjár og marki grunninn að dreifðu eignarhaldi á Högum og er bæði horft til þess að almenningur og fagfjárfestar eignist hlut í félaginu, en jafnframt er markmið seljandans að fá ásættanlegt verð fyrir eign sína.
Heildarsöluandvirði útboðsins getur numið á bilinu 2,7-4,9 milljörðum króna
Útboðið nemur 20% af útgefnum hlutum í Högum hf. þar af eru 12,5% ætluð tilboðsbók og 7,5% ætluð netáskrift. Seljandi kann þó að gera breytingar á þeirri skiptingu ef eftirspurn fjárfesta gefur tilefni til þess og mun þá hafa markmið útboðsins að leiðarljósi. Seljandi áskilur sér jafnframt rétt til að stækka útboðið í allt að 30% af útgefnu hlutafé.
Allir hlutir í útboðinu verða seldir á sama endanlega útboðsgengi sem verður á verðbilinu 11-13,5 krónur á hlut. Fjárfestir getur skilyrt áskrift sína við að endanlegt útboðsgengi fari ekki yfir ákveðið hámarksverð á hlut. Ef ekkert hámarksverð er tilgreint hefur fjárfestirinn samþykkt endanlegt útboðsgengi.
Áskriftartímabil útboðsins mun standa yfir 5.-8. desember 2011
Útboðið er til aðila (einstaklinga og lögaðila) með íslenska kenntölu sem eru fjárráða og ráða búi sínu sjálfir.
Netáskrift
Áskrift að andvirði 100 þúsund til 25 milljóna króna er skilað á sérstökum áskriftarvef á heimasíðu Arion banka, www.arionbanki.is. Til að skila netáskrift þarf fjárfestir að eiga netbanka hjá Arion banka eða panta lykilorð á áskriftarvefnum, en það er sent í netbanka viðkomandi sem getur verið í hvaða íslenska viðskiptabanka sem er.
Tilboðsbók
Áskrift að andvirði 25-500 milljóna króna er skilað í tilboðsbók hjá Hlutabréfamiðlun og Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka. Þar er gefinn kostur á að skila inn svokölluðu samsettu tilboði, þar sem heildaráskrift viðkomandi kennitölu er skipt í minni undirtilboð á mismunandi verði.
Ákvörðun um endanlegt útboðsgengi, endanlega stærð útboðsins og skiptingu seldra hluta milli tilboðsbókar og netáskriftar mun taka mið af eftirspurn í útboðinu. Niðurstaða útboðsins mun liggja fyrir í lok síðasta útboðsdags.