11.03.2014

Al­þjóð­leg fjármála­læsisvika 2014

Fjölbreytt dagskrá í heila viku vekur börn og ungmenni til vitundar um fjármál

Stofnun um fjármálalæsi fer fyrir hópi stofnana og fyrirtækja sem standa fyrir ýmsum viðburðum í annarri viku marsmánaðar til að fagna alþjóðlegri fjármálalæsisviku 2014. Arion banki er aðalstyrktaraðili Stofnunar um fjármálalæsi. Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin á Íslandi en alls taka þátt yfir 100 lönd í öllum heimsálfum. Dagskrá vikunnar er fjölbreytt og skemmtileg.

Nýr fjármálalæsisleikur fyrir efstu bekki grunnskóla verður kynntur til sögunnar, leiðsögn um sýningu í Seðlabankanum og fjármálafyrirlestur Jóns Jónssonar í Arion banka er meðal þess sem börnum býðst á dagskrá fjármálalæsisvikunnar. Dagskráin fylgir hér fyrir neðan og er einnig aðgengileg á www.fe.is.

Hleypt verður af stokkunum nýjum fjármálalæsisleik fyrir unglinga. Leiknum, sem kallast Óskalistinn, er ætlað að auka áhuga nemenda á eigin fjármálum og gengur út á að fá þátttakendur til þess að hugsa til framtíðar og ráðstafa framtíðartekjum. Leikurinn er hannaður af nemendum í MPM námi í Háskólanum í Reykjavík og stendur öllum grunnskólum til boða að nýta sér leikinn í fjármálalæsiskennslu.

Alþjóðleg fjármálalæsisvika á Íslandi er hluti af alþjóðlegri vitundarvakningu sem ætlað er að vekja athygli á mikilvægi fjármálalæsismenntunar og stuðla að viðhorfsbreytingu þegar kemur að fjármálum. Hollenska góðgerðarhreyfingin Child and Youth Finance International stendur að átakinu á alþjóðavísu. Hreyfingin vinnur að eflingu fjármálalæsis og aðgengi barna og ungmenna að öruggri og barnvænni fjármálaþjónustu um heim allan. Hreyfingin nýtur stuðnings margra framámanna og stofnana á heimsvísu, þar á meðal aðalritara Sameinuðu þjóðanna, Ban-Ki Moon.

Í dag hefur innan við 1% allra barna í heiminum aðgang að fjármálalæsismenntun eða fjármálaþjónustu við sitt hæfi. Skortur á fjármálalæsi veldur því að ungt fólk lendir í vanda vegna skuldsetningar, sem hefur neikvæðar afleiðingar á þroska þess og velferð. Markmið fjármálalæsisvikunnar er að gera börnum og ungmennum grein fyrir mikilvægi fjárhagslegra réttinda sinna.

Að alþjóðlegri fjármálalæsisviku standa Arion banki, Fjármálaeftirlitið, Fjármálaráðuneytið, hópur nemenda í MPM námi í Háskólanum í Reykjavík, Meniga, NASDAQ OMX kauphöllin, Neytendastofa, Seðlabanki Íslands, Stofnun um fjármálalæsi, Umboðsmaður skuldara og Viðskiptaráð.

Dagskrá

Mánudagurinn 10. mars 
9:30 Nemendur í 10. bekk Salaskóla hringja inn vikuna í Kauphöllinni

Þriðjudagurinn 11. mars
14:00- 16:00. Leiðsögn um myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns, Kalkofnsvegi 1 (við Arnarhól). Myntsafnið er annars opið frá 13:30 til 15:30. Símanúmer Seðlabankans er 569 9600.

Miðvikudagurinn 12. mars
Óskalistanum nýjum fjármálalæsisleik hleypt af stokkunum í Salaskóla
14:00- 16:00. Leiðsögn um myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns, Kalkofnsvegi 1 (við Arnarhól). Myntsafnið er annars opið frá 13:30 til 15:30. Símanúmer Seðlabankans er 569 9600.
19:00 Fyrirlestur Jóns Jónssonar í Arion banka fyrir nemendur í 8.-10. bekk

Fimmtudagurinn 13. mars
14:00- 16:00. Leiðsögn um myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns, Kalkofnsvegi 1 (við Arnarhól). Myntsafnið er annars opið frá 13:30 til 15:30. Símanúmer Seðlabankans er 569 9600.
15:00-17:00 Neytendastofa verður í Smáralind, dreifir bæklingum um neytendalán og svarar spurningum

Föstudagurinn 14. mars
Óskalistinn, nýr fjármálalæsisleikur, leikinn í Lindaskóla
12:00-14:00 Neytendastofa verður í Kringlunni, dreifir bæklingum um neytendalán og svarar spurningum
Fjármálaráðuneyti fyrirlestrar í Háskólanum

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira