10.04.2013
Ánægja með Kauphallardaga
Hátt í 200 manns mættu á velheppnaða Kauphallardaga Arion banka sem haldnir voru í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni 19 dagana 4. og 5. apríl.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, opnaði viðburðinn en meðal þeirra sem tóku til máls fyrri daginn voru forstjórar fyrirtækjanna Atlantic Petroleum, BankNordik, Eimskip, HB Granda, Marel og TM.
Seinni daginn var röðin komin að forstjórum Advania, Nýherja, Icelandair Group og tryggingafyrirtækjanna VÍS og Sjóvá ásamt fleirum.