12.07.2011
Árbók Einkaklúbbsins fyrir árið 2011 - 2012 er komin út
Viðskiptavinir í Vildarþjónustu Arion banka og námsmenn með Kortið fengu í fyrra sent Einkaklúbbskort sem gildir til tveggja ára, eða út maí 2012. Þessir viðskiptavinir fá nú senda nýja árbók sem gildir líkt og kortið út maí 2012.
Árbókin hefur aldrei verið veglegri en nú. Fjöldi góðra tilboða er í bókinni, s.s. á veitingastöðum og af verslun og þjónustu um allt land.
Upplýsingar um klúbbinn er að finna á www.ek.is og þar er einnig hægt að sjá árbókina á pdf. formi.
Það er von okkar að tilboðin komi viðskiptavinum Arion banka vel.