02.04.2009
Áríðandi tilkynning: Lokun Heimabanka SPRON og nb.is
Að beiðni yfirvalda tók Nýi Kaupþing banki yfir allar innstæður á reikningum viðskiptavina SPRON og nb.is.
Reikningarnir hafa verið aðgengilegir í netbanka SPRON og nb.is fram að þessu. Lokað verður fyrir þann aðgang frá og með laugardeginum 4. apríl nk.
Við hvetjum þig til að kynna þér Netbanka Kaupþings þar sem reikningarnir verða áfram aðgengilegir. Hægt er að nálgast notendanafn og lykilorð í netbankanum undir Yfirlit-Rafræn skjöl og þar í fellilistanum Tegund.
Þú getur einnig stofnað aðgang að Netbanka Kaupþings og fengið nánari upplýsingar í næsta útibúi bankans.
Þjónustuver Kaupþings, sími 444-7000, er opið laugardaga milli kl.11-16. Þjónustuverið verður einnig opið sunnudaginn 5. apríl nk. milli kl. 12-14.