30.10.2009
Áríðandi tilkynning vegna greiðsluseðla íbúðalána
Hluti greiðsluseðla íbúðarlána Nýja Kaupþings berst ekki nú um mánaðarmótin vegna tæknilegra örðugleika. Viðskiptavinir geta séð og greitt gjaldagann í Netbanka Nýja Kaupþings og í hvaða bankaútibúi sem er.
Viðskiptavinir með lánavernd sem hafa fengið rangan greiðsluseðil fyrir eingöngu tryggingunni eiga ekki að greiða seðilinn.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Starfsfólk Nýja Kaupþings banka