12.08.2011
Arion banka mótið í fótbolta 13. ágúst
Á morgun verður haldið fyrsta Arion banka mótið í fótbolta í samstarfi við Víking og Andabæ.
Mótið er fyrir 7. og 8. flokk kvenna og karla og fer fram í Víkinni í Fossvogi. Allir þátttakendur fá glæsilegan Disney glaðning og verðlaunapening ásamt hamborgaramáltíð að hætti Grillhússins. Einnig verður skotkeppni milli leikja þar sem hægt er að vinna til verðlauna.
Við hvetjum alla foreldra sem eiga fótboltakrakka í 7. og 8. flokki til að mæta á mótið.