15.08.2012
Arion banka mótið í fótbolta verður haldið um helgina
Mikil stemning og ánægja ríkti á mótinu í fyrra þar sem þátttakendur voru 860 talsins. Nú eru hins vegar 1200 krakkar skráðir til leiks og stefnir í æsispennandi og skemmtilegt fótboltamót. Mótið verður haldið dagana 18. og 19. ágúst og er fyrir krakka í 7. og 8. flokki í knattspyrnu. Líkt og í fyrra fer mótið fram í Víkinni, félagssvæði Víkings í Fossvogi, og fá allir þátttakendur glæsilegan Disney glaðning og verðlaunapening ásamt hamborgaramáltíð að hætti Grillhússins.
Við hvetjum alla til að koma og fylgjast með upprennandi fótboltastjörnum Íslands keppa á stórmóti um helgina í Víkinni.