03.11.2010

Arion banki aðal­bak­hjarl komu Dr. Michael Port­ers til landsins

Vel heppnuð heimsókn Dr. Michael Porters

Hélt fyrirlestra hér á landi um íslenskan jarðvarma og heilbrigðismál

Dr. Michael Porter, einn helsti fræðimaður heims á sviði stefnumótunar og samkeppnishæfni þjóða, var hér á landi til að kynna rannsókn sína á klasamyndun í íslenskum orkugeira. Arion banki var aðalbakhjarl rannsóknarinnar og þeirrar ráðstefnu sem haldin var 1. nóvember til að kynna niðurstöður hennar.

Ráðstefnan sem haldin var að frumkvæði ráðgjafafyrirtækisins Gekon og fór fram fyrir fullum sal í Háskólabíói var einstaklega vel heppnuð en þar fór Michael Porter yfir stöðu íslenska jarðvarmaklasans og hvar helstu sóknarfæri hans liggja. Segja má að rannsókn Porters og félaga sé grunnur að frekari þróun og eflingu hins íslenska jarðvarmaklasa en að því verki munu fjölmargir aðilar koma, svo sem íslensk orkufyrirtæki, verkfræðistofur, háskólar sem og viðeigandi stofnanir og ráðuneyti.

En Michael Porter kom ekki hingað til lands eingöngu til þess að ræða um jarðvarma því hann talaði einnig á fundi í húsakynnum Arion banka um stefnumótun í heilbrigðismálum. Kenningar Porters á sviði heilbrigðismála hafa vakið verðskuldaða athygli um heim allan. Porter er annar tveggja höfunda bókarinnar „Redefining Health Care“, sem hefur haft umtalsverð áhrif síðan hún kom fyrst út árið 2006.

Arion banki og Frumtök í samstarfi við Gekon buðu til fundarins sem var fyrir fagaðila innan heilbrigðisgeirans. Michal Porter fjallaði um efni bókarinnar undir yfirskriftinni „Value-Based Health Care Delivery“. Fundinum stjórnaði fyrrum landlæknir Sigurður Guðmundsson, prófessor og deildarforseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.

Boðskapur Porters til fundargesta byggði á mikilvægi þess að finna bestu og hagkvæmustu leiðina til að þjónusta sjúklinga og gera upplifun þeirra sem jákvæðasta. Porter telur sérhæfingu í heilbrigðiskerfinu mikilvæga, milli stofnana og landshluta, og jafnvel getur verið rétt að sækja út fyrir landsteinana þjónustu sem er of dýr fyrir okkur sem þjóð að viðhalda. Einnig lagði Porter áherslu á kosti þess að skipuleggja starf heilbrigðisstofnana í kringum þarfir sjúklinga en ekki í kringum sérhæfingu starfsmanna.

Meðal gesta á ráðstefnunni voru fulltrúar heilbrigðisráðuneytisins, háskóla, spítala og heilsugæslu. Nánari upplýsingar um fyrirlestur Michael Porters um heilbrigðismál má finna á vef Frumtaka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira