11.11.2011
Arion banki aðalbakhjarl Sprotaþings Íslands
Arion banki og Sprotaþing Íslands skrifuðu nýlega undir samstarfssamning og er bankinn nú aðalbakhjarl Sprotaþingsins. Samstarfið felur meðal annars í sér að Arion banki heldur Sprotaþing Íslands, í samvinnu við Klak nýsköpunarmiðstöð, og örfjárfestaþing sem haldin eru nokkrum sinnum á ári hverju.
Sprotaþingið á í nánu samstarfi við frumkvöðla- og háskólasamfélagið og er haldið í yfir tuttugu löndum. Markmið Sprotaþingsins er að kynna íslensk sprotafyrirtæki auk þess sem það er vettvangur fyrir frumkvöðla og fjárfesta til að hittast og auka tengsl sín við aðra hagsmunaaðila sem koma að málefnum frumkvöðla. Það er mikilvægt fyrir íslenska frumkvöðla að hafa slíkan vettvang og einstakt tækifæri fyrir þá til að koma viðskiptahugmyndum sínum á framfæri.
Örfjárfestaþingin eru minni fundir þar sem fyrirtækjum gefst kostur á að vera með stuttar kynningar fyrir fjárfesta. Ætlunin er að búa til tengingu milli frumkvöðla og fjárfesta með virkri og skapandi umræðu.
Sprotaþing Íslands var í dag haldið í fjórtánda sinn í höfuðstöðvum Arion banka. Meðal fyrirlesara voru Hjálmar Ragnarsson, rektor Listaháskólans, Dr. Marina Candi, framkvæmdastjóri CRIE og dósent við HR, Guðmundur Sigurjónsson, starfandi stjórnarformaður Kerecis og Helgi Bjarnason, framkvæmdastjóri hjá Arion banka. Sex fyrirtæki kynntu starfsemi sína fyrir fjárfestum, þar af fjögur íslensk.
Á meðfylgjandi myndum má sjá Steinar Korsmo, stofnanda Seed Forum International og Þorstein Friðriksson, forstjóra fyrirtækisins Plain Vanilla, ásamt gestum í ráðstefnusal Arion banka.