26.11.2010

Arion banki af­skrif­ar tæpa 13 millj­arða vegna fasteigna­veð­lána

Þau úrræði sem Arion banki býður einstaklingum og fjölskyldum í skuldavanda hafa leitt til þess að bankinn hefur nú þegar afskrifað um 12,8 milljarða króna af fasteignaveðlánum þessara viðskiptavina.

Rétt um 4.000 viðskiptavinir hafa nýtt sér lausnir bankans en þar fyrir utan hafa um 10.000 viðskiptavinir bankans nýtt sér opinber úrræði.

Bankinn hefur afskrifað 5,5 milljarða vegna úrræða þegar erlendu láni er breytt yfir í verðtryggt eða óverðtryggt lán í krónum. Þá hefur bankinn afskrifað um 7,2 milljarða vegna úrlausna á svokallaðri 110% leið bæði í erlendri mynt og íslenskri krónu.
Bankinn hefur lokið um 60 málum þar sem einstaklingar hafa nýtt sér sértæka skuldaaðlögun, að auki eru um 150 slík mál á lokastigi. Heildarafskriftir bankans vegna sértækrar skuldaaðlögunar nema 1,8 milljörðum, en rétt er að taka fram að sú fjárhæð er ekki tekin með nema að litlu leyti í ofangreindum 13 milljörðunum þar sem málum er ekki fyllilega lokið.

Arion banki hefur ekki verið beiðandi á nauðungarsölu á íbúðahúsnæði frá því í október 2009.

Sérhæfð ráðgjafarþjónusta

Arion banki hefur einnig komið á fót sérhæfðri ráðgjafarþjónustu þar sem markmiðið er að koma sem best til móts við þarfir viðskiptavina í greiðsluvanda. Hver viðskiptavinur fær sinn eigin ráðgjafa sem vinnur með honum allt úrlausnarferlið og þeir finna í sameiningu þá lausn sem hentar hverju sinni. Ráðgjafinn fylgir síðan málum viðkomandi einstaklings eftir þar til allir lausir endar eru frágengnir. Markmiðið er að allir sem eiga í greiðsluvanda hafi fengið úrlausn sinna mála innan nokkurra mánaða.

Starfsfólk ráðgjafarþjónustunnar leggur enn frekari áherslu á að hafa að fyrra bragði samband við þá viðskiptavini bankans sem eiga í verulegum greiðsluvanda. Það frumkvæði hefur mælst vel fyrir en vert er að taka fram að eftir sem áður geta slíkir einstaklingar leitað ráðgjafar í öllum útibúum bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira