15.04.2011
Arion banki bakhjarl Hjálparstarfs kirkjunnar
Hjálparstarf kirkjunnar kynnti í dag breytingar á innanlandsaðstoð sinni. Það mun taka upp inneignarkort í stað matarúthlutunar og verður hópurinn sem fær kortin þó takmarkaður við fjölskyldufólk. Með þessari breytingu er verið að mæta þeirri miklu gagnrýni sem hefur verið á matarúthlutanir og verða matarpakkarnir úr sögunni.
Arion banki hefur í gegnum árin átt farsælt samstarf við Hjálparstarfið og er viðskiptabanki þess. Bankinn kemur að þessari nýju tilhögun með því að kosta útgáfu inneignarkortanna og veita fjárhagslegan stuðning. Til viðbótar mun Arion banki kosta aðstoð fjármálaráðgjafa fyrir skjólstæðinga Hjálparstarfsins. Sá mun koma einu sinni í mánuði og mun ásamt félagsráðgjöfum Hjálparstarfsins hjálpa skjólstæðingum að annast fjármál sín þannig að sem besta útkoma náist í hverju máli, óháð því hvar viðkomandi eiga viðskipti.