28.04.2011

Arion banki býður 10-11 til sölu

Ákveðið hefur verið að bjóða til sölu verslanakeðjuna 10-11, sem er í eigu Eignabjargs, dótturfélags Arion banka.

  • Boðið er til sölu allt hlutafé í Rekstrarfélagi Tíu-ellefu ehf. og er gert ráð fyrir að það verði selt í einu lagi. Söluferlið er opið öllum fjárfestum sem uppfylla skilyrði um viðeigandi þekkingu og fjárhagslegan styrk.

  • Frestur til að skila óskuldbindandi tilboðum í félagið er til 18. maí. Í kjölfarið munu valdir fjárfestar fá aðgang að frekari upplýsingum um félagið áður en óskað verður eftir bindandi tilboðum og gengið til endanlegra samninga um kaup og sölu.

  • Áhugasömum aðilum er bent á að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka sem hefur umsjón með söluferlinu.

Rekstrarfélag Tíu-ellefu ehf. rekur 23 verslanir undir merkjum 10-11 á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjanesbæ og á Akureyri. Vörumerkið 10-11 er meðal þeirra þekktustu á markaðnum og verslanirnar vel staðsettar, en hjá félaginu starfa um 200 manns. Stefna félagsins er að 10-11 sé fyrsti valkostur neytenda sem vilja nýta sér fljóta og einfalda þjónustu hvenær sólarhringsins sem er.

Verslanakeðjan var í eigu Haga hf. þar til á síðasta ári, en þá tók Rekstrarfélagið við rekstri keðjunnar ásamt eignum og skuldum.

Frekari upplýsingar

Upplýsingar um söluferlið má nálgast hjá Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka í síma 444-6000 eða með því að senda tölvupóst á fyrirtaekjaradgjof.10-11@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira