07.06.2012
Arion banki býður á handboltalandsleik
Strákarnir okkar munu á sunnudaginn etja kappi við Hollendinga um laust sæti á HM karla í handbolta sem fram mun fara á Spáni í janúar 2013. Fyrri leikurinn fer fram í Laugardalshöll þann 10. júní og býður Arion banki landsmönnum á leikinn.
Mikilvægt er að fylla Höllina svo strákarnir fái góðan stuðning og fari með gott veganesti inn í seinni leikinn sem fram fer í Hollandi.
Hægt var að nálgast miða í útibúum Arion banka og kláruðust miðarnir mjög fljótt.
Arion banki er stoltur bakhjarl HSÍ.