27.09.2012
Arion banki býður bílafjármögnun og aðild að FÍB
Frá og með deginum í dag býður Arion banki upp á fjármögnun bifreiða þar sem áhersla er lögð á hagstæð kjör og faglega ráðgjöf. Þessari þjónustunýjung bankans fylgir aðild að Félagi íslenskra bifreiða-eigenda (FÍB), án endurgjalds í eitt ár, en aðildin felur í sér víðtæka þjónustu, ráðgjöf og fræðslu fyrir bílaeigendur.
Í bílafjármögnun Arion banka er hægt að fá fjármögnun til kaupa á bifreiðum sem eru allt að 7 ára gamlar. Miðað er við að útborgun sé 30% af kaupvirði bifreiðarinnar. Viðskiptavinir geta valið á milli kaupleigu eða bílaláns og verðtryggðra eða óverðtryggðra breytilegra vaxta. Til að aðstoða við mat á þeim valkostum sem í boði eru er að finna á vef Arion banka reiknivél sem sýnir með skýrum hætti muninn á mismunandi valkostum auk greiðsluáætlana.
Í tilefni af þessari nýjung í vöruframboði Arion banka hefur bankinn gengið til samstarfs við Félag íslenskra bifreiðaeigenda. Markmið samstarfsins er að færa þeim sem nýta sér bílafjármögnun Arion banka alla þjónustu sem FÍB veitir, þeim að kostnaðarlausu í eitt ár. Meðal þess sem FÍB býður upp á er sólarhringsvakt fyrir bílaeigendur er lenda í vandræðum.
Fræðsla mun einnig gegna mikilvægu hlutverki í samstarfi Arion banka og FÍB. Þannig fá viðskiptavinir fræðslu um hagkvæmari rekstur bifreiða, leiðir til að minnka notkun eldsneytis og útblástur en einnig lögfræðilega ráðgjöf um álitamál í bílaviðskiptum og tækniráðgjöf fyrir allar gerðir bifreiða, svo að dæmi séu tekin.
Hægt er að sækja um bílafjármögnunina hjá öllum helstu bílaumboðum og bílasölum.